Gunnhildur Halla Ármannsdóttir
Tunglgarðurinn / Moon Garden
Drottning næturinnar
Stál, silfurslaglóð
Umvafið tóm
Postulín
Ljósleifar
Gler
Ljóstæmi
Kol úr elritré
Tunglgarður er ræktaður til að fegra nóttina og lifnar við þegar dimmir. Næturblómstur endurkasta tunglsljósi af hvítum krónublöðum og ilmur fyllir loftið.
Yfir eina nótt breiðir Drottning næturinnar út faðm sinn og fangar silfrað hvísl tunglsins. Við dögun lýtur hún höfði og visnar.
Í myrkri glampar minning og leifar af ljósi halda í liðin augnablik.
Í tunglgarðinum hneigir drottningin sig fyrir nóttinni, eftir stendur tóm umvafið viðkvæmu postulíni.
—
Queen of the Night
Steel, silver solder
Enveloped void
Porcelain
Afterimages
Stained glass
Antilight
Charcoal from an alder tree
A Moon Garden is created for the night and comes alive after dark. Night blooming
flowers reflect moonlight of their white petals, and a heavy scent fills the air.
The Queen of the Night opens her embrace, blooming only for one night, capturing
silvery whispers from the moon. Once the night comes to an end she wilts and passes her reign to dawn. In the dark gleams a memory and remnants of light hold onto passed moments.
In a Moon Garden the queen bows before the night. Left is a void enveloped in fragile Porcelain.
Myndir: Sisters Lumière