Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuGréta Jónsdóttir útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild vorið 2026
Ritgerð þessi fjallar um listrannsókn mína þar sem persónuleg vegferð mín í að vekja sköpunarkraft minn úr dvala er í forgrunni ásamt því að rannsaka eigið sköpunarferli og kynnast mér betur sem listakonu og verðandi kennara.
Frá ungum aldri hef ég heillast af blómum og átt margar jákvæðar upplifanir í gegnum tíðina þar sem blóm koma við sögu. Blóm hafa áður birst sem viðfang í verkum mínum og kalla ennþá á mig. Í fræðilega yfirlitinu má finna umfjöllun um blóm í sögulegu samhengi, fagurfræði þeirra og skynjun, ásamt því hvernig blóm hafa birst í myndlist. Í kjölfarið er rýnt í heilunaráhrif blóma og listar og þá sérstaklega ljósmyndunar sem leið til sjálfsskoðunar og heilunar.
Í ljósi þess að blóm kalla enn á mig sem viðfang í listsköpun minni og einnig í ljósi heilunaráhrifa þeirra, valdi ég að nota þau sem efnivið í þessari rannsókn. Aðferðir listrannsóknarinnar voru autoetnografískar. Áhersla var lögð á mikilvægi ferlisins sjálfs án pressu um fyrirframgefna útkomu. Skissudagbók gegndi lykilhlutverki sem verkfæri til að halda utan um hugmyndavinnu og kveikjur, ásamt því að hún var nýtt til ígrundunar, sem og til að halda utan um ferlið sjálft. Skissudagbókin var ekki bundin við eitt ákveðið snið; í henni má finna skissur, dagbókarfærslur, textabrot og ljósmyndir. Unnið var með ljósmyndun sem meginmiðil þar sem áhersla var lögð á að setja sjálfa mig inn í ramma svo til allra myndanna þar sem ég var í virku samspili við viðfangið og umhverfið.

Gréta með skúlptúrinn Hljóðlilja
Í sköpunarferlinu urðu til tvö verk, annars vegar ljósmyndasería sem nefnist Blómalandslag og hins vegar verkið Hljóðlilja. Í lokin er fjallað um kennslufræðilegt gildi einstaklingsmiðaðra ferla eins og til dæmis skissudagbókar sem aðferð fyrir nemendur til að vinna eigin hugmyndavinnu og halda utan um eigið sköpunarferli á því formi sem hentar þeim hverju sinni.
Áhersla listrannsóknarinnar var á að rannsaka eigið sköpunarferli og vekja sköpunarkraftinn úr dvala. Það tókst og er allt sem varð til í ferlinu árangur í sjálfu sér og hluti af útkomu hennar.
Leiðbeinendur: Ingimar Ólafsson Waage og Rakel McMahon
20 ECTS Listkennslufræði M.Art.Ed.
2026