Kvikmyndalistadeild
Deild
FILMA · Kvikmyndalistadeild · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Brynjar byrjaði að fikta í kvikmyndagerð í framhaldsskóla með vinum sínum eftir að hafa elskað kvikmyndir frá barnsaldri og hefur síðan þá komið að gerð fjölda stuttmynda sem hafa margar unnið til verðlauna. Úr náminu útskrifast hann með áherslu á leikstjórn en myndirnar hans eru sjónrænt djarfar með sterka tilfinningarót og eru oftar en ekki ljáðar miklum húmor.

BA Kvikmyndagerð

Stuttmynd: RBBRTOY2000

Móttökuritarinn Saga er skotin í vinnufélaga sínum Fannari en fyrir henni er hann lokuð bók. Einn daginn stelst hún til að lesa dularfullt og klúrið bréf stílað á hann og til að seðja eigin forvitni ákveður hún að elta hann heim í laumi og kynnist þá gúmmígljáðum heimi BDSM.

Leikstjórn: Brynjar Leó Hreiðarsson Handrit: Brynjar Leó Hreiðarsson Framleiðandi: Brynjar Leó Hreiðarsson, Elizabeth Karen Guarino Stjórn kvikmyndatöku: Konráð Kárason Þormar Klipping: Egill Spano Hljóðhönnun: Phantom sound and music Tónlist: Samúel Dóru Reynis Leikmynd: James C. Thompson, Egill Ari Hreiðarsson Leikarar: Rakel Ýr Stefánsdóttir, Fannar Arnarsson, Birgir Breiðdal, Sindri Snær Jónsson