Tónlistardeild
Deild
Útskriftarverkefni
Námsleið
2024
Ár
Um verkefnið

01.05.24 – kl.19:00

Gróska, fundarsalur

BA hljóðfæraleikur

Flytjendur

Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó

Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðla

Styrmir Þeyr Traustason, píanó

Arnar Geir Halldórsson er fæddur í Keflavík árið 2001. Hann hóf nám í sellóleik við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar árið 2009 og lauk framhaldsprófi þaðan í maí 2021. Hann naut leiðsagnar Pawels Panasiuk í upphafi náms síns en síðan tók Gréta Rún Snorradóttir við sem aðalkennari hans allt til útskriftar. Haustið 2021 hóf Arnar Geir nám í klassískum hljóðfæraleik við Listaháskóla Íslands og hefur Sigurgeir Agnarsson verið hans aðalkennari. Arnar Geir hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum hérlendis og erlendis í gegnum skólagöngu sína í LHÍ og á öðrum vettvangi. Meðal annars hefur hann verið þátttakandi í sinfóníverkefnum með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar sem og Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Arnar Geir stefnir á frekara nám í sellóleik að lokinni útskrift frá Listaháskóla Ísland.