Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Luis Carlos Aleman Furlan

Luca Furlan er upprennandi handritshöfundur og leikstjóri frá Guatemala, búsettur á Íslandi. Hann sækir innblástur í rómansk-amerískar kvikmyndir og frásagnarlist, og blandar áhrifum þaðan í sögur sem eiga rætur í íslenskum veruleika. Verk hans endurspegla oft persónuleg tengsl hans við hinsegin frásagnir og fjalla um vináttu, eftirsjá og þögla hugrekkið sem þarf til að horfast í augu við fortíðina og halda áfram. 




BA Kvikmyndagerð

Stuttmynd: Vakan

Ströglandi kabarettsöngkona leitar í dulræna helgisiði, en þegar hún endurheimtir hæfileika sína áttar hún sig á því að árangurinn kostar sitt.

Leikstjórn: Luca Furlan Handrit: Luca Furlan Framleiðandi: Tabita Paula Avotiņa Stjórn kvikmyndatöku: Edvards Bērziņš Klipping: Albert Eriksen Hljóðhönnun: Una Mist Óðinsdóttir Tónlist: Una Mist Óðinsdóttir Aðstoðarleikstjóri: Álfheiður Richter Leikmyndahönnuður: Roberta Kalniņa Búningahönnuður: Agnese Krūzmane Lýsing: Aldis Bičevskis Leikarar: Telma Huld Jóhannesdóttir, Sintija Ceplauska, Olafs Putrālis