
Matthías er kvikmyndagerðarmaður með fjölda stuttmynda að baki. Hann vinnur innan ólíkra kvikmyndagreina með fjölbreyttan áhorfendahóp í huga. Gegnumgangandi í verkum hans er þó alltaf áhugi á klassískri kvikmyndagerð, fortíðinni, tungumáli og sálarlífi manneskjunnar. Honum er umhugað um að gera myndir sem ögra, vekja spurningar og takast á við málefni sem oft liggja í þagnargildi. Þannig vill hann fleyta fram umræðunni um kvikmyndamiðilinn, möguleika hans og áskoranir á Íslandi.

BA Kvikmyndagerð
Stuttmynd: Þinn elskandi Óli
Árið er 1882. Óli og Geir eru unnustar að útskrifast úr Lærða skólanum í Reykjavík. Í útskriftarveislunni verður Óli þess var að Geir rennir hýru auga til annars skólapilts.
Leikstjórn: Matthías Kristinsson Schram Handrit: Matthías Kristinsson Schram Framleiðandi: Una Gíslrún Schram, Tryggvi Kolviður Sigtryggsson Stjórn kvikmyndatöku: Óttar Ingi Þorbergsson Klipping: Brynjar Leó Hreiðarsson Hljóðhönnun: Nicolas Liebing Tónlist: Kári Egilsson Leikarar: Grettir Valsson, Arnaldur Halldórsson, Killian G. Briansson