Verkefnið Magni rannsakar hvernig draga má fram sérstök staðareinkenni við Strandveg í Vestmannaeyjum og nýta þau sem grunn að nýju inngripi í portinu á Skipasandi. Hönnunin miðar að því að hámarka menningarlegt virði svæðisins með áherslu á endurbætur og vernd, fremur en niðurrifs og nýbyggingar.
Kjarni verkefnisins felst í að virkja það kolefni sem þegar er bundið í mannvirkjum staðarins, út frá þeirri forsendu að umhverfisvænasti arkitektúrinn sé sá sem þegar hefur verið reistur. Með því að endurnýja Magnahúsið frá 1912 sem verbúð, myndast órjúfanleg tengsl milli sögulegs byggingararfs og nútímalegra krafna um sjálfbærni. Markmiðið er að blása nýju lífi í gamlar glæður og skapa vistvæna umgjörð um framtíðarmiðaðan iðnað í Vestmannaeyjum.
Magni explores how to highlight the unique local characteristics of Strandvegur in Vestmannaeyjar, using it as a foundation for a new intervention within the Skipasandur skipyard. The design prioritizes adaptive reuse over demolition to maximize cultural value and minimize carbon impact.
The core of the project lies in activating the embodied carbon, following the principle that the most sustainable building is the one already standing. By repurposing the 1912 Magni building and the storage space at Strandvegur 72 into a residency, historical heritage is seamlessly integrated with modern sustainability. The goal is thus to rekindle old embers and create an eco-friendly framework for future-oriented industry in Vestmannaeyjar.
Myndir: Claudio Parada Nunes
Sigurrós Birta Guðmundsdóttir
Magni


