Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
20.05.26
Salurinn Tónlistarhús
Flytjendur
Ágúst Arnhildarson
BA Hljóðfæratónsmíðar
Ágúst Arnhildarson (f. 1997) er tónlistarmaður og útgefið ljóðskáld. Í tónsmíðum hans má m.a. nefna verk fyrir fiðlu, en Ágúst er fiðluleikari og býr yfir viðamikilli reynslu af tónlistarflutningi. Frá unga aldri lagði hann stund á klassískt tónlistarnám og ólst upp við öflugt kórastarf. Ágúst hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum með hljómsveitum, kammersveitum, kórum og sönghópum. Þannig hafa sönglög orðið áberandi í tónsmíðum hans, þar sem ást hans og andakt í garð íslenskrar tungu kristallast í samruna ljóða og tóna. Um fyrstu ljóðabók Ágústs sagði rithöfundurinn og ljóðskáldið Steinunn Sigurðardóttir: ,,ný dúndurrödd – einstök tilfinninganæmi og orðkynngi.“ Hinn íslenski þjóðararfur er bakland listsköpunar Ágústs, en rætur hans í Fnjóskadal, Suður-Þingeyjarsýslu, mótuðu hans heimssýn. Heyra má áhrifin að norðan í sönglögum eftir Ágúst, t.d. í verki sem ber titilinn ,,Foldarskart fallins lands“ og samdi Ágúst það í minningu ömmu sinnar. Ræturnar minna á sig í norðlenskri tjáningu íslenskunnar og í efnistökum ljóðanna, en ekki síst í leiftrandi sorgartilfinningu þar að baki. Sorg er hér útgangspunktur tónmálsins, og í senn hnúturinn, sem tónskáldið reynir að leysa.
Síðastliðin þrjú ár hefur Ágúst lagt stund á bakkalárnám í Hljóðfæratónsmíðum við Listaháskóla Íslands og útskrifast þaðan vorið 2026. Sú þekking og þjálfun sem Ágúst hefur hlotið í tónsmíðanáminu gerir honum nú kleift að sinna prýðilega hlutverki tónskálds við eigin ljóðlist og hyggst hann þróa sínar aðferðir og tónlistarsköpun í meistaranámi.