Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Við Listaháskóla Íslands takast nemendur í fatahönnun á við listrannsóknir, gagnrýna hugsun og fjölbreytta aðferðafræði fatahönnunar með skapandi lausnum. Verkefni spegla umhverfissjónarmið, tækniþekkingu og samfélagslega þróun.
Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.
Um námið
Áhersla er lögð á að kynna nemendur fyrir fjölbreyttum aðferðum við hönnunarferla, að efla gagnrýna skapandi hugsun, og að undirbúa nemendur til þess að takast á við áskoranir samtímans með aðferðum hönnunar.
Umhverfissjónarmið, gæði, tækni og skapandi handverk eru lykilhugtök námsins. Nemendur vinna rannsókn sem er rauði þráðurinn í gegnum hugmyndavinnu, aðferðafræði, skissuvinnu, efnaval, framkvæmd á útfærslum í efni og að lokum miðlun á niðurstöðum. Nemendur fá þjálfun í tæknilegum miðlum og forritum, sniðagerð, fatasaum, teikningu, fjölbreyttum textílaðferðum og aðferðum við miðlun verka, s.s. ljósmyndun og framsetningu.
Nemendur á öðru ári vinna í samstarfi við Rauða krossinn að verkefninu Misbrigði þar sem notaður fatnaður er endurunninn og settur í nýtt samhengi og afraksturinn sýndur á tískusýningu. Síðastliðin ár hafa nemendur unnið með Cristóbal Balenciaga safninu á Spáni að verkefni sem tekur mið af aðferðum meistarans og er jafnframt framlag til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni á vegum safnsins.
Náminu lýkur með rannsókn og stórri tískusýningu þar sem útskriftarnemendur sýna lokaverkefni sín til BA gráðu, eigin fatalínu sem endurspeglar sérhæfingu, áherslur og fagurfræði hvers og eins.
Uppbygging náms
Námið sem er til þriggja ára er 180 einingar og skiptist í fræði, tækni og vinnustofur. Kennsla fer fram í fyrirlestrum, á verkstæðum og á vinnusvæði nemenda þar sem hver hefur sína eigin aðstöðu. Námið er staðbundið, kennt á íslensku og er nemandinn ábyrgur fyrir eigin námsframvindu. Námið sem er nemendamiðað gefur hverjum og einum svigrúm til að nálgast verkefnin eftir eigin áhugasviði og styrkleikum en hlutverk kennarans er að leiðbeina um hönnunarferlið og verkfæri og styðja nemandann í eigin þekkingarleit. Áhersla er á samtal nemandans við kennara og samnemendur, þar sem eigin verk og annarra eru túlkuð og sett í samhengi. Námsmat er skrifleg umsögn og miðar við staðið/fallið.
Að loknu námi
Að loknu námi eiga nemendur að vera færir um að vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt að ólíkum verkefnum á sviði fatahönnunar, hjá hönnunarfyrirtækjum eða sjálfstætt. Námið undirbýr nemendur einnig vel fyrir framhaldsnám á meistarastigi.
Til að sækja um bakkalarnám í grafískri hönnun er rafræn umsókn fyllt út, umbeðin gögn látin fylgja og í kjölfarið þarf að greiða umsóknargjaldið. Þegar þessum skrefum er lokið og þegar gengið hefur verið úr skugga um að umsækjandi hafi skilað inn öllum nauðsynlegum upplýsingum og fylgiskjölum fær hann staðfestingu í tölvupósti á að rafræn umsókn sé fullgild og móttekin.
Ef fjöldi umsækjenda sem standast inntökukröfur námsleiða er undir lágmarksviðmiðum verður ekki tekið inn á námsleið fyrir komandi skólaár. Eru umsækjendur upplýstir um slíkt eins fljótt og auðið er og skrásetningargjald endurgreitt, hafi það verið greitt.
Hér fyrir neðan eru sérleiðbeiningar fyrir vissa þætti umsóknarinnar.
14. janúar 2026
13. apríl 2026
Maí / júní 2026
Umsækjendur gera grein fyrir ástæðu umsóknar í viðkomandi námsleið. Kynningarbréfið á að hámarki að vera ein blaðsíða.
Heimilt er að veita inngöngu í skólann þeim umsækjendum sem búa yfir þekkingu og reynslu
sem telst fullnægjandi undirbúningur til bakkalárnáms við skólann.
Umsækjendur sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði geta sótt um undanþágu hafi þeir
lokið t.d. fjölmörgum einingum á framhaldsskólastigi, lokið öðrum lokaprófum svo sem á 4.
hæfniþrepi eða hafa annan undirbúning sem getur undirbúið viðkomandi undir nám á
háskólastigi á viðkomandi námsleið. Umsóknir um undanþágu frá almennum
inntökuskilyrðum eru metnar af fagaðilum innan viðkomandi deildar. Niðurstaða mats á
undanþáguumsóknum er endanleg. Við mat á umsóknum er horft til samverkandi þátta með
tilliti til einkunna í námi á framhaldsskólastigi, menntunar í listgreinum, frekari menntunar,
starfsreynslu og þátttöku í félagsstörfum. Hvert tilfelli er skoðað sérstaklega og getur samspil
þessara þátta haft áhrif á niðurstöðu. Umsækjendur eru hvattir til að gera grein fyrir öllu því
sem þeir telja geta orðið umsókn sinni um undanþágu frá almennum inntökuskilyrðum til
framdráttar.
Inntökunefndir meta umsóknir á grundvelli innsendra gagna auk viðtala og/eða inntökuprófa á
þeim sviðum sem við á. Deildarforseti skipar inntökunefnd fyrir hverja námsleið í samráði við
fagstjóra og vinna inntökunefndir eftir verklagsreglum sem kynntar eru umsækjendum.