Millisafnalán eru lán frá öðrum bókasöfnum á bókum eða tímaritsgreinum sem ekki eru til á bókasafni LHÍ.
Millisafnalán eiga ekki við um lán frá almenningsbókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu. Lánþegum er bent á að sækja sér þjónustu milliliðalaust á þau bókasöfn.
Beiðnir um millisafnalán eru fylltar út í leitir.is – sjá leiðbeiningar.
Lánþegar:
- Finna sjálfir ritið á leitir.is og smella á Leita að tiltækri þjónustu.
- Skrá sig inn sem notendur Listaháskóla Íslands með rafrænum skilríkjum eða notandanafni og lykilorði.
- Velja Millisafnalán í Hvernig á að nálgast.
- Merkja við Fús til að greiða.
- Velja Afendingarstað úr listanum.
- Smella á Senda beiðni.
Ef ritið finnst ekki á leitir.is:
- Smella á flipann Millisafnalán.
- Skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða notendanafni og lykilorði.
- Fylla út Beiðni um millisafnalán.
- Merkja við Fús til að greiða.
- Velja Afhendingarstað úr listanum.
- Smella á Senda beiðni.
Við afgreiðum millisafnalán eins fljótt og hægt er. Lánstími gagna er 30 dagar en hægt er að biðja um endurnýjun.
Rit og greinar eru afhent í afgreiðslu bókasafnsins í Stakkahlíð. Athugið að tímaritsgreinar eru einungis afhentar útprentaðar.
Beiðni um millisafnalán er bindandi og verður rukkað fyrir ósóttar beiðnir.
Ef einhver vandræði koma upp hafið samband við bókasafnið í síma 545 2217 eða sendið tölvupóst í millisafnalan@lhi.is
Spurningar um þetta efni?
Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.