Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Útskriftarhátíð Tónlistardeildar Listaháskóla Íslands hefst föstudaginn 27. mars og stendur yfir fram í byrjun júní. Á hátíðinni gefst áheyrendum kostur á að kynnast fjölbreyttum útskriftarverkefnum nemenda, þar sem ólíkir miðlar, stílar og nálganir mætast.

Hátíðin hefst með útskriftarverki Dmitri Drobko, Expectations: Sound & Movement, sem flutt verður í Dansverkstæðinu, Hjarðarhaga föstudaginn 27. mars. Verkið er unnið í samstarfi við dansarann Leevi Mettinen og kannar samspil hljóðs og hreyfingar.
Sjá viðburð
Mánudaginn 30. mars fara fram útskriftartónleikar Viktors Árna Veigarssonar í Smekkleysu. Þar kemur hann fram ásamt hljómsveitunum Kollaps og Forsmán, auk undir nafninu Meinsemd, og gefur innsýn í sína kraftmiklu tónlistarsköpun.
Sjá viðburð

Frekari útskriftartónleikar fara fram í apríl, en hápunktur hátíðarinnar verður dagana 26.–29. apríl í Salnum í Kópavogi. Þar verður fjölbreytt dagskrá þar sem nemendur stíga á svið með metnaðarfull tónlistarverkefni.
Útskriftarhátíðinni lýkur síðan 5. júní með útskriftarverki Rashelle Reyneveld í Black Boxinu í Laugarnesi.
Aðgangur er ókeypis á alla viðburði hátíðarinnar og öll hjartanlega velkomin.