Útgáfusjóður Listaháskóla Íslands hefur lokið úthlutun styrkja fyrir árið 2026. Hlutverk sjóðsins er að styðja við útgáfuverkefni akademísks starfsfólks og efla miðlun rannsókna og listsköpunar á sviði lista.
Að þessu sinni hlutu sex verkefni styrk. Umsóknir endurspegluðu fjölbreytt viðfangsefni og ólík útgáfuform og voru metnar með hliðsjón af faglegum gæðum og tengslum verkefna við rannsóknir, kennslu og starfsemi LHÍ.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrk úr útgáfusjóði LHÍ árið 2026:
Guja Dögg Hauksdóttir – Byggingarlist í víðsjá
Marteinn Sindri Jónsson – Infrastructures of the Public Sphere: Socially Engaged Art and Curatorial Practice in the New New Germany
Berglind María – Niður, íslenskur sirkus um Ljósagang
Guðbjörg R Jóhannesdóttir – Birki í menningu, listum og lífinu
Með úthlutun úr útgáfusjóði styður LHÍ við þróun og miðlun fræðilegrar og listrænnar þekkingar og styrkir um leið rannsóknamenningu skólans. Við óskum styrkþegum til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þessum spennandi verkefnum.