Kennarar og núverandi og fyrrum nemendur við Kvikmyndalistadeild Listaháskóli Íslands taka þátt í fjölda kvikmyndahátíða á Íslandi og erlendis á vormánuðum, þar á meðal Šoblé Film Festival, Easy to Be Young? Film Festival, Lisboa Indie Film Festival (LISBIFF) og íslensku Stockfish Film & Industry Festival sem stendur yfir dagana 19.–29. mars í Bíó Paradís.
Eftirfarandi myndir eru þátttakendur í Stockfish Film & Industry Festival
Sprettfiskur (Shortfish)
Leiknar íslenskar stuttmyndir
-
Submit – Samúel Lúkas Rademaker
-
Allt fyrir þig – Salvör Bergmann
-
Kveðja, röð 9 sæti 1 – Jun Gunnar Lee Egilsson
Stuttar íslenskar heimildarmyndir
-
Íslenskur Herkúles – Orri Guðmundsson
-
Lúpína – Ernir Ómarsson
Íslensk tilraunaverk
-
Dabb – Vigdís Ósk Howser Harðardóttir
Íslensk tónlistarmyndbönd
-
Television Love (Of Monsters and Men) – leikstjóri Erlendur Sveinsson
-
Mirror (Gyða Valtýsdóttir) – leikstjóri Hanna Hulda Hafþórsdóttir
Kvikmyndahátíðir fyrir utan landssteinana
Alþjóðleg þátttaka nemenda er eftirtektarverð og hafa eftirfarandi verk verið valin á alþjóðlegar kvikmyndahátíðir.
Šoblė Film Festival (Vilníus, Litháen)
-
Sara – Steinar Þór Kristinsson
-
Óáran – Álfheiður R. Sigurðardóttir
-
5A – Gabríel Elí Jóhannsson
Easy to Be Young? Film Festival (Ríga, Lettland)
-
Hindurvitni – Steinar Þór Kristinsson
-
Þessi fallegi dagur – Hanna Hulda Hafþórsdóttir
Lisboa Indie Film Festival (Lissabon, Portúgal)
-
Hekla – Jóna María Hjartardóttir
Við erum sannarlega stolt að sjá þann kraft og fjölbreytileika sem kemur úr starfi Kvikmyndalistadeildar Listaháskóli Íslands og óskum öllu okkar kvikmyndagerðafólki hamingjuóskir með þennan árangur og óskum þeim velfarnaðar í áframhaldinu.