Úlfar I. Haraldsson heldur fyrirlestur um tónsmíðar sínar í málstofu tónsmíðanema í Sölvhóli, föstudaginn 24. feb. kl. 13-14:40.
Úlfar Ingi Haraldsson byrjaði að fást við tónlist um 1979 og stundaði nám á 9. áratugnum við Tónlistarskóla FÍH og Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann nam og starfaði síðar við University of California í San Diego þaðan sem hann lauk doktorsprófi í tónsmíðum og tónfræðum árið 2000. Hann hefur á undanförnum árum starfað sem tónskáld, bassaleikari og stjórnandi ásamt því að sinna ýmiskonar kennslu tengdri tónlist. Verk hans hafa verið víða flutt, bæði í tengslum við
margvíslegar tónlistarhátíðir og á tónleikum fjölda listamanna og hljómsveita á Íslandi og erlendis.
 
Um Úlfar Inga Haraldsson
Úlfar hóf formlegt tónfræðinám við Tónlistarskóla Skagafjarðar 1981. Innritaðist síðan í djassdeild Tónlistarskóla FÍH og nam þar kontrabassaleik og djassfræði um tveggja ára skeið. Stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík á síðari hluta 9. áratugarins og lauk burtfararprófi í tónfræðum og tónsmíðum á tónfræðadeild 1990, þar sem kennarar hans voru m.a. Karólína Eiríksdóttir og Þorkell Sigurbjörnsson.
Úlfar stundaði framhaldsnám í tónsmíðum og tónfræðum við University of California, San Diego á tímabilinu 1992-99 og lauk doktorsprófi 2000. Aðalkennarar hans voru Brian Ferneyhough, Rand Steiger og Bertram Turetzky. Titill lokaverkefnis var „Developing Methodological Strategies for the Documentation and Treatment of Multi-Strucural Elements in Modern Musical Composition as relating to Dual Closure.”
Úlfar hefur starfað sem tónskáld, tónlistarkennari, kontrabassaleikari og stjórnandi á Íslandi, Kaliforníu og Mexico. Hann hefur samið hljómsveitar-, kammer-, kór og einleiksverk sem flutt hafa verið víða um heim af margvíslegum flytjendum t.a.m. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput Ensemble, Kammersveit Reykjavíkur, Hljómeyki, slagverkssnillingnum Steven Schick, Turetzky Duo, ítalska kórnum Libera Cantoria Pisani, Christians Consort í Noregi og Formalist String Quartet. Hann hefur átt samstarf við Íslenska Dansflokkinn og ECA artist network. Hann hefur komið fram sem flytjandi og átt verk á tónlistarhátíðum s.s. Ung Nordisk Musik Festival; International University Music Festival og Darmstad Revisited Festival í San Diego; Listahátíð í Reykjavik, og ýmsum viðburðum er tengdust samstarfinu „Menningarborgir Evrópu”, Norrænum Tónlistardögum, Myrkum Músíkdögum ásamt fjölda annarra tónleika á Íslandi og erlendis. Hann starfar nú sem tónskáld og kennari í tónsmíðum og tónfræðum við Listaháskóla Íslands ásamt kennslu í tónlistarsögu við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskóla FÍH.