Tónlistardagur Halldórs Hansen.

Þriðjudaginn 14. apríl fer fram verðlaunaafhending og úthlutun úr sjóði Halldórs Hansen. Viðburðurinn fer fram í Skriðu, Stakkahlíð 1 og hefst kl.15:00.

Halldór Hansen barnalæknir lét eftir sig mikið tónlistarsafn með um 10.000 hljómplötum, sem hann ánafnaði Listaháskólanum í erfðaskrá ásamt öðrum eigum sínum sem skyldu renna í sérstakan sjóð í hans nafni. Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn Listaháskóla Íslands og veita árlega styrk til framúrskarandi tónlistarnema.

Fyrstu styrkirnir voru veittir árið 2004 og hafa þeir verið veittir árlega síðan ef undan er skilið árið 2011 en engin verðlaun voru veitt það árið.

Dagskrá

15:00 Kristín Eysteinsdóttir (Rektor Listaháskóla Íslands)
15:10 Igor Kabala og Matthías Kormáksson, harmonikur
15:25 Haukur Ingi Jónasson – Raddir sálar og söngs: Áhugi Halldórs Hansen á sállækningum
15:45 Pétur Jónasson (Deildarforseti Listaháskóla Íslands) veitir verðlaun
15:50 Verðlaunahafi flytur verk.

Stjórn sjóðsins skipa þau Kristín Eysteinsdóttir, formaður, Þóra Einarsdóttir, ritari, Pétur Jónasson, meðstjórnandi og Magnús Lyngdal Magnússon, varamaður í stjórn.

Um styrktasjóð