Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Steinar Ari Kristmundsson – Útskriftartónleikar
Söngur: Björk Ásgrímsdóttir
23. maí kl. 19 í tónlistarskóla Garðabæjar
Steinar Ari Kristmundsson hóf píanónám sjö ára gamall á Húsavík hjá Aladár Rácz. Tónlistaráhuginn hefur fyglt í gegnum árin og lauk hann framhaldsprófi úr tónlistarskóla Hafnarfjarðar vorið 2021, undir leiðsögn Sigurðar Marteinssonar. Steinar heldur síðan áfram í meira nám í Listaháskóla Íslands og útskrifast vorið 2024 með bakkalárgráðu í söng- og hljóðfærakennslu. Kennarar hans eru Peter Máté og Edda Erlendsdóttir. Steinar heldur síðan áfram í Meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu og lýkur því námi núna í vor.
Steinar hefur komið fram á fjölda tónleikum hérlendis og erlendis, hann fór með skólanum til Svíþjóðar, Finnlands, Eistlands og Lettlands á bakkarlársárum sínum í LHÍ. Þar að auki hefur hann tekið þátt í nótunni, uppskeruhátið tónlistarskólanna, sem og að hjálpa með uppsetningu IX. Píanókeppni EPTA 2025. Samhliða náminu hefur Steinar verið að kenna í tónlistarskóla Garðabæjar og stefnir hann að meiri kennslu þar í haust.