Verið hjartanlega velkomin á opinn fyrirlestur Myndlistardeildar.
Sigrún Hrólfsdóttir sem nýverið var ráðin prófessor við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands mun í fyrirlestrinum fjalla um eigin verk.
Sigrún vinnur með margvíslega miðla, málverk, teikningu, innsetningar og gjörningalist, sem fjalla um sýnileg og ósýnileg öfl í heiminum. Hún hefur sýnt í öllum helstu söfnum og sýningarstöðum hér heima og víða erlendis, á eigin vegum og ásamt Gjörningaklúbbnum / The Icelandic Love Corporation (1996-2016). Verk hennar er að finna í opinberum söfnum og einkasöfnum. Sigrún hefur kennt við Listaháskóla Íslands sem stundakennari frá árinu 2002 og var deildarforseti Myndlistardeildar frá 2016-2021. Á árunum 2022-2023 gegndi hún rannsóknarstöðu um hlut kvenna í íslenskri myndlist við Listasafn Reykjavíkur. Hún lærði myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Pratt University, New York og er með BA og MA gráðu í listfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands. Sigrún býr og starfar á Íslandi.