Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Hljómsveitin Korda Samfónía heldur útgáfutónleika 26. maí kl. 19:30 í Silfurbergi í Hörpu. Tilefnið er útgáfa annarrar breiðskífu hljómsveitarinnar, sem ber heitið Ný vídd. Miðasala er hafin á harpa.is.
Ný vídd inniheldur tónleikaupptökur frá síðustu tveimur tónleikum hljómsveitarinnar í Silfurbergi, í júní 2024 og maí 2025. Þar voru frumfluttar nýjar tónsmíðar í bland við eldri verk, sem endurspegla breidd og sérstöðu tónlistar hljómsveitarinnar.
Korda Samfónía er einstök hljómsveit sem telur 30–45 meðlimi og sameinar fjölbreyttan hóp tónlistarfólks: faglærða hljóðfæraleikara, háskólanema og einstaklinga í bata eftir lífsbreytandi áföll. Hljómsveitin spannar víðfeðman hljóðheim, með stórri rythmasveit hljómborðshljóðfæra, gíturum, slagverki, strengjum, blásurum og tólf manna kór.
Tónlist Kordu Samfóníu verður til í sameiginlegu sköpunarferli allra meðlima, óháð bakgrunni eða reynslu. Í verkunum má greina áhrif úr rokk-, djass- og dægurtónlist, auk alþjóðlegrar og vestrænnar klassískrar tónlistar.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Hörpu, Tónlistarborgina Reykjavík og starfsendurhæfingamiðstöðvar um land allt.
Hugmyndafræði Kordu byggir á því að skapandi samstarf og jákvæð samskipti efli sjálfstraust, virkni og bata. Útkoman er kraftmikil og fáguð tónlist með dýpt sem endurspeglar fjölbreytta reynsluheima hljómsveitarmeðlima.
Korda er samstarfsverkefni MetamorPhonics á Íslandi, Listaháskóla Íslands, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, Hörpu og starfsendurhæfingamiðstöðvum víðsvegar um landið.
Verkefnið er styrkt af Heilbrigðisráðuneyti, Félags og vinnumálaráðuneyti, Mennta og barnamálaráðuneyti og Menningar og atvinnumálaráðuneytum Íslands, ásamt Tónlistarborginni Reykjavík.
Listrænn stjórnandi er Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths.