Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku
Söngnemendur Listaháskóla Íslands sýna óperuna Hans og Grétu eftir tónskáldið Engelbert Humperdinck þann 8. Maí kl.20 og 9. maí kl.15 í Svarta boxinu, húsnæði Listaháskóli Íslands í Laugarnesi.
Alls taka 13 nemendur þátt í sýningunni og skipta með sér hlutverkum.
Óperan Hans og Gréta er byggð á hinu þekkta Grimmsævintýri um tvö systkin sem villast í skóginum og lenda í klóm vondrar nornar sem lokkar börn til sín með húsi úr kökum og sælgæti. Með hugrekki og snarræði tekst systkinunum að sigra nornina og frelsa öll börnin sem hún hafði fangað.
Nemendur hafa unnið að uppsetningunni í vetur undir leiðsögn Önnu Maríu Tómasdóttur og Matthildar Önnu Gísladóttur, ásamt söngkennurum deildarinnar.
Söngnemendur Listaháskóli Íslands hafa á undanförnum árum staðið að fjölbreyttum og metnaðarfullum óperusýningum og þannig fengið dýrmætt tækifæri til að takast á við bæði stærri og smærri hlutverk og kynnast fjölbreyttum stílum óperulistformsins.

Aðrir viðburðir

: ?>