Tónlistardeild
Deild
Tónsmíðar BA · Útskriftarhátíð 2025 · Útskriftarverkefni
Námsleið
2025
Ár
Um verkefnið

08.05.25

Salurinn Kópavogi

Flytjendur

BA Nýmiðlatónsmíðar

Una Mist er tónlistarframleiðandi, hljóðlistakona og hljóðfærasmiður. Hún lærði ung á fiðlu og selló, en fann síðar sína rödd í raftónlist. Hún sækir innblástur í eigið umhverfi og nýtir efnivið úr náttúrunni til að hanna og smíða sín eigin rafhljóðfæri.

Kuðungur

Kuðungur er tvíþætt verk sem samanstendur af átta laga hljómplötu og handgerðu rafhljóðfæri. Platan sameinar tilraunakennda tónlist og popp, leikur sér að mannlegum tilfinningum og stafrænni hljóðhönnun til að skapa einstaka og stundum yfirnáttúrulega hljóðheima. Hljóðfærið stendur fyrir tónlistina á áþreifanlegu formi; framlenging sem heldur utan um lögin og flutning þeirra.