Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku10.05.25
Hallgrímskirkja
Flytjendur
Sveinn Arnar Sæmundsson
Kammerkór
Kór Víðistaðasóknar
Sveinn Arnar Sæmundsson
BA. Kirkjutónlist
Sveinn Arnar hóf nám í píanóleik ungur að árum í Tónlistarskóla Skagafjarðar hjá Stefáni R. Gíslasyni. Árið 1994 hóf hann nám í orgelleik við Tónlistarskóla Akureyrar hjá Birni Steinari Sólbergssyni og vorið 1999 lauk hann 8. stigi í orgelleik, þá undir handleiðslu Eyþórs Inga Jónssonar. Sveinn Arnar stundaði kirkjutónlistarnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar þar sem orgelkennarar hans voru voru Hörður Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson. Hann útskrifaðist með kantorspróf þaðan haustið 2006 og einleiksáfanga frá sama skóla vorið 2010.
Arnar hefur sótt námskeið í kórstjórn og orgelleik, bæði hér heima og erlendis m.a. annars hjá Mathias Wager, Lasse Ewerlöf, Dan-Olof Stenlund, Hákoni Leifssyni og Guðmundi Óla Gunnarssyni. Frá árinu 2002 til ársins 2021 var hann organisti og kórstjóri við Akraneskirkju og frá haustinu 2021 hefur hann starfað sem organisti við Víðistaðakirkju.
Einnig hefur hann stjórnað Kammerkór Akraness, Kór Kalmans, Karlakórnum Heimi, Kvennakórnum Freyjunum og Reykholtskórnum.
Sveinn Arnar var útnefndur bæjarlistamaður Akraness árið 2012.