Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Styrmir Þeyr Traustason

07.05.25
Salurinn Kópavogi


Flytjendur
Friðrik Örn Sigþórsson – kontrabassi
Högni Gunnar Högnason – selló
Katrín Karítas Viðarsdóttir – víóla
Matthías Kormáksson – harmonikka
Styrmir Þeyr Traustason – píanó
Tómas Vigur Magnússon – fiðla
Ýmir Haukur Guðjónsson – saxafónn
Guðni Franzson – Stjórnandi 

Styrmir Þeyr Traustason
BA Hljóðfæratónsmíðar


Styrmir Þeyr hóf píanónám við Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar 6 ára að aldri undir handleiðslu Helgu Bryndísar Magnúsdóttur en var þá lengst af hjá Páli Barna Szabó. Sextán ára hóf Styrmir nám sitt í skapandi tónlist við Tónlistarskólann á Akureyri, námsleið á framhaldsskólastigi í samstarfi við Menntaskólana á Akureyri. Sat hann þar ýmis fög er koma að upptökutækni, hljóðvinnslu, lagasmíðum o.fl. og sat einkatíma hjá bæði Hauki Pálmasyni og Kristjáni Edelstein. Samhliða skapandi tónlist dýfði Styrmir tánum í rytmískan hljóðfæraflutning og lærði sitthvort árið hjá þeim Ludwig Kára Forberg og Phil Doyle. Veturinn 2021-22 einbeitti Styrmir Þeyr sér aftur að klassískum píanóleik og lauk þá um vorið framhaldsprófi með hjálp þáverandi píanókennara síns, Þórarins Stefánssonar. 

Haustið 2022 fékk Styrmir inni í hljóðfæratónsmíðum við Listaháskóla Íslands og hefur lært þar síðustu þrjú árin undir handleiðslu Einars Torfa Einarssonar. Þá hefur hann einnig verið nemandi þeirra Peter Maté og Eddu Erlendsdóttur í áframhaldandi píanónámi. Styrmir hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum á vegum skólans, þar á meðal tveggja alþjóðlegra verkefna; annarsvegar heimsókn til Svíþjóðar og Finnlands með píanódeild Listaháskólans og hinsvegar samstarfsverkefni með tónlistarháskólanum Conservatorio C. Monteverdi í Bolzano, Ítalíu. Í því síðarnefnda tók Styrmir þátt sem bæði tónskáld og flytjandi, þar sem hljómsveitarverk eftir tónsmíðanemendur skólanna tveggja voru flutt á tónleikum af hljóðfæranemendum. Einnig hefur Styrmir tekið virkan þátt á ýmsum viðburðum hérlendis sem einleikari sem og meðlimur í hljómsveitum sem komið hafa fram í sjónvarpi, Músíktilraunum og smærri tónleikaviðburðum á Akureyri. Þá flutti hann píanókonsert í A-moll eftir Edward Grieg á tónleikum með Hljómsveit Akureyrar undir stjórn Michael Clarke í maí 2024.

Efnisskrá


S. Rachmaninoff: Trio Élégiaque Nr. 1 í g-moll

Styrmir Þeyr: Árfarvegur

Styrmir Þeyr: Nykurinn og Smalapilturinn

„Piltur einn kom að árbakka og var að leita fjár. Við bakkann var nykur. Piltur fór á bak honum og reið til bæjar þar í grennd og spurði hvert ekki væri komið nón, en þá var ekki nykurinn lengi að bregða við og rann til vatns og steypti sér þar út í með piltinn.“  [íslensk þjóðsaga]

Nykurinn og Smalapilturinn

Nykurinn og Smalapilturinn er tónaljóð byggt á íslenskri þjóðsögu sem segir frá atburðum drengs sem svo óheppilega rekst á nykur. Í tónlistinni má heyra ýmis mótíf sem fá á sig táknmynd fyrirbæra er að koma fyrir í þjóðsögunni. Verkið byggir á þessum mótífum og ágreiningi þeirra, togstreita piltsins og nykursins, þess saklausa og djöfullega, er þar í forgrunni. Lætur smalinn undan og verður nykrinum að bráð? Eða snýr hann sæll heim aftur?