Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuSilja Þórðardóttir útskrifast með meistaragráðu af námsleiðinni listir og velferð frá listkennsludeild árið 2026
Verkefnið er um listaseðla sem mögulega leið til að efla geðheilsu, vellíðan og félagslega þátttöku á Íslandi. Rannsóknin byggir á eigindlegri fýsileikakönnun meðal ólíkra hagsmunaaðila. Opinn spurningalisti var sendur til hagsmunaaðila frá heilbrigðisþjónustu, félags- og velferðarþjónustu, lista- og menningargeiranum, stjórnun og stefnumótun, auk mögulegra notenda þjónustunnar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig listaseðlar gætu nýst hér á landi og hvaða þættir skipta mestu máli í hugsanlegri innleiðingu.
Helstu niðurstöður benda til þess að listaseðlar gætu verið mikilvæg viðbót við núverandi úrræði, sérstaklega fyrir einstaklinga sem glíma við félagslega einangrun, lága virkni, geðrænar áskoranir, kulnun eða skort á tilgangi. Hagsmunaaðilar töldu skapandi þátttöku geta stutt við bætta líðan, eflt virkni, tilgang og tengsl.
Jafnframt benda niðurstöður til þess að hugsanleg innleiðing listaseðla kallar á skýrt tilvísunarferli, gott utanumhald, fjármögnun og þverfaglegt samstarf milli heilbrigðis-, félags- og menningargeira. Listaseðlar gætu þannig skapað brú milli einstaklinga og skapandi samfélagsúrræða, þar sem listir og menning væru nýttar sem heilsueflandi auðlind.
Leiðbeinandi: Svala Sigurðardóttir
30 ECT Listir og velferð
2026