Söngleikurinn Leg eftir Hugleik Dagsson og Flís sem var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu haustið 2007 við miklar vinsældir er útskriftarsýning leikaranema Listaháskóla Íslands 2025.
Í heimi þar sem peningar og partý, fegurð og frægð eru það eina sem skiptir máli er hin nítján ára Kata ólétt og í tilvistarkreppu.
Leg gerist á Íslandi í framtíð sem eitt sinn var fjarlæg og dystópísk en á skuggalega vel við samtíma okkar. Segja má að framtíðarsýn Hugleiks hafi að mörgu leyti ræst, við sækjumst flest eftir ást og viðurkenningu á samfélagsmiðlum á meðan það verður sífellt flóknara að vera til í raunveruleikanum. Pressan um að líta óaðfinnanlega út, eiga fallegasta heimilið, flottustu vinnuna og skemmtilegustu vinina verður sífellt meiri. En hvað af þessu skiptir raunverulegu máli?
Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikstýrir kraftmiklum útskriftarhópi leikarabrautar Listaháskóla Íslands þar sem nýjasta kynslóð leikhúslistafólks tekst á við beitta þjóðfélagsádeilu Hugleiks Dagssonar með húmor og leikgleði að leiðarljósi.
„Það er svo æðislegt að vera ung og falleg í vernduðu umhverfi. Það er svo æðislegt að vera í menntaskóla þar sem allir elska þig.“
„Mörgþúsund milljón árum síðar búið að virkja allt nema sólina. Náttúrufegurð draugur fortíðar og mannkynið herðir ólina.“
ÚTSKRIFTARNEMENDUR:
Elva María Birgisdóttir
Helga Salvör Jónsdóttir
Hrafnhildur Ingadóttir
Ingi Þór Þórhallsson
Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Kristinn Óli Sigrúnarson Haraldsson
Mímir Bjarki Pálmason
Sólbjört Sigurðardóttir
Stefán Kári Ottósson
Salka Gústafsdóttir, lokaverkefni hennar er Stormur sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.
AÐSTANDENDUR
Leikstjórn: Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Sviðsmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Ljósahönnun: Aron Martin Ásgerðarson
Hljómsveit: Fannar Sigurðsson á gítar/hljómsveitarstjórn, Jón Ingvi Seljeseth á hljómborð/ýmsar græjur, Friðrik Örn á bassa/moog, Andri Eyfjörð Jóhannesson á trommur/slagverk. Allt nemendur í tónlistardeild LHÍ.
Yfirumsjón með tónlist og raddþjálfun: Kristjana Stefánsdóttir, aðjúnkt við sviðslista- og tónlistardeild LHÍ
Hljóðmaður: Snorri Beck Magnússon
Aðstoð við sviðsmynd og búninga: Hulda Kristín Hauksdóttir, nemandi í hönnunardeild LHÍ
Dans og sviðshreyfingar: Sólbjört Sigurðardóttir og bekkurinn
Sýningar- og verkefnastjóri: Vigdís Perla Maack
Aðstoðarleikstjóri: Salka Gústafsdóttir, útskriftarnemandi leikarabrautar LHÍ
Leikmyndasmíði: Egill Ingibergsson
Tjaldasaumur: Ólafur Pétur Georgsson
Umsjónarmaður: Guðmundur Erlingsson
Ljósmyndir: Björgvin Sigurðarson
Fagstjóri leikarabrautar: Agnar Jón Egilsson
RADDIR & BARNAKÓR
Stuðningsraddir: Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir, Svava Rún Steingrímsdóttir & Salka Gústafsdóttir.
Kór og söng útsetningar: Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir, Svava Rún Steingrímsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir.
Barnakór:
Aría Valdís Teitsdóttir
Áróra Egelund
Áróra Martinsdóttir Kollmar
Björg Sigurðardóttir
Bríet Ebba Vignisdóttir
Hafdís Birna Einarsdóttir
Heiða Kristín Eiríksdóttir
Helen Ívarsdóttir
Isabella Diljá Torres
Kría Valgerður Vignisdóttir
Lára Ísadóra Hafþórsdóttir
Lísbet Lóa Ákadóttir le Sage
Rakel Harðardóttir
Saga Eir Weston
Sigríður Sjana Ákadóttir le Sage
Snædís Elín Stefánsdóttir
Sóldís María Hjaltadóttir
Ylfa Björk Einarsdóttir
Þórarna Vala Jónsdóttir
Þórunn Ása Snorradóttir
ÞAKKIR
Byko
Svavar Burgundy Þórólfsson
Vala Rúnarsdóttir
Einar í Vök
Edda Haraldsdóttir
Freyr Eyjólfsson
Góði Hirðirinn
Lára Rut Þorsteinsdóttir
Gullið mitt
Starfsfólk Þjóðleikhússins
Ebba Áslaug Kristjánsdóttir
Einar Tómasson
Auður Eir Guðnadóttir
Ólafur Pétur Georgsso
ORÐ FRÁ FAGSTJÓRA
Kæru leikhúsgestir.
Það er með bjartsýni, fagmennsku og sprúðlandi sköpunarkrafti sem leikaranemarnir 10 hefja sig til flugs inn í atvinnumennsku sviðslistanna. Þau ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur takast á við LEG eftir Hugleik Dagsson og Flís en verkið braut blað í íslenskri sviðslistasögu þegar það var sett upp árið 2007. LEG á enn erindi líkt og þá, jafnvel enn meira erindi þegar tíðarandinn og notkun samfélagsmiðla eru sett í samhengi við verkið.
Listafólkið sem nú útskrifast sem leikarar með BA gráðu frá LHÍ hafa á síðustu þremur árum helgað sig náminu og listagyðjunni með aðdáunarverðri einurð og einlægni. Líkams- og raddtækni, leiktækni og fræði leiklistarinnar hafa verið hreiður þeirra en nú er komið að því að þau fljúgi þöndum vængjum af stað inn í framtíðina.
Við óskum þeim til hamingju með áfangann og óskum þeim gæfu og gengis í lífinu og á leið listarinnar.
Agnar Jón Egilsson
Fagstjóri leikarabrautar LHÍ