Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Lára Ruth Clausen

26.04.26
Salurinn Tónlistarhús


Flytjendur
Lára Ruth Clausen söngur
Matthildur Anna Gísladóttir píanó
Beinta Ingeborg Greve söngur
Stjörnukór Fríkirkjunnar í Reykjavík, stjórnandi Álfheiður Björgvinsdóttir

Lára Ruth Clausen
B.Mus Söngur

Lára Ruth Clausen er aðstoðarkórstjóri, söngkona og tónlistarkona með víðtæka reynslu í kórstjórnun, tónlistarflutningi og sviðslistum. Hún hefur starfað sem aðstoðarkórstjóri barnakóra Fríkirkjunnar í Reykjavík frá 2021 og í Hallgrímskirkju frá 2025, þar sem hún tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd kóræfinga. Hún hefur einnig haft umsjón með sunnudagaskólum í nokkrum kirkjum, þar á meðal Hallgrímskirkju, Fríkirkjunni, Langholtskirkju og Áskirkju.

Lára stundar BA nám í klassískum söng við Listaháskóla Íslands og útskrifast 2026. Hún lauk framhaldsprófi í einsöng frá Menntaskóla í tónlist 2023 og hefur lokið mið- og grunnprófi í söng frá Tónlistarskóla Kópavogs ásamt námi í þverflautu, píanóleik og tónfræðigreinum.

Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum sviðsverkefnum og óperum, meðal annars La Liberazione (2025), Leðurblökunni (2024), Hans og Grétu (2022) og Brúðkaupi Fígarós (2019). Á árunum 2021–2024 söng hún í sýningunni 9 líf í Borgarleikhúsinu.

Lára hefur komið fram bæði sem kór- og einsöngvari í fjölbreyttum tónlistarverkefnum, unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og tekið þátt í tónleikum og upptökum hérlendis og erlendis. Hún syngur í Kór Hallgrímskirkju og kammerkórnum Huldur og tók þátt í World Youth Choir 2024 og 2025. Hún hefur jafnframt verið virk í ungmennastarfi og setið í ráðum á vegum Ungíkór, NorbuSang og KFUM og K.