Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuHildur Sumarliðadóttir útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild vorið 2025.
Þetta lokaverkefni fjallar um hvernig skapandi vinnusmiðja og fræðsla geta valdeflt ungmenni til að verða meðvitaðir og ábyrgir neytendur í heimi þar sem hraðtíska, skaðleg efni í fatnaði og mannréttindabrot eru daglegt brauð.
Í verkefninu er fjallað um áhrif textíliðnaðarins á heilsu, umhverfi og samfélag, með sérstakri áherslu á eiturefni í fatnaði, samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni. Byggt er á fræðilegum grunni um menntun til sjálfbærni, umbreytandi nám og listrænan aktívisma sem kennsluaðferð, þar sem listsköpun er notuð til að efla gagnrýna hugsun og vitundarvakningu. Verkefnið felur í sér eigindlega rannsókn á vinnusmiðjunni Upp Upp og Snú, þar sem ungmenni fengu tækifæri til að skapa úr notuðum textíl og ígrunda áhrif neyslu sinnar. Aðferðafræðin byggði á þátttöku, viðtölum og þemagreiningu á upplifun þátttakenda.
Niðurstöður sýna að slík fræðsla og skapandi nálgun getur aukið meðvitund ungmenna um sjálfbærni, eiturefni í fatnaði og félagslega ábyrgð, auk þess að draga úr vanmáttarkennd og loftslagskvíða með valdeflandi verkfærum. Afurð verkefnisins er námsvefur sem inniheldur verkefni sem styðja við kennslu í sjálfbærni og skapandi endurnýtingu. Ritgerðin undirstrikar mikilvægi þess að samþætta gagnrýna fræðslu og listir í skólastarfi til að efla virka þátttöku ungmenna í samfélagi framtíðarinnar.
Leiðbeinandi: Hanna Margrét Einarsdóttir
30 ECTS MA listkennslufræði
2025