Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Guðný Guðmundsdóttir

26.04.26
Salurinn Tónlistarhús


Flytjendur
Guðný Guðmundsdóttir söngur
Matthildur Anna Gísladóttir píanó

Freyja Jónsdóttir
B.Mus Söngur

Guðný Guðmundsdóttir hóf tónlistarnám sitt 5 ára gömul í Stúlknakór Reykjavíkur hjá Margréti J. Pálmadóttur en hóf síðar nám í tónskólanum Domus Vox þar sem að kennarar hennar voru Hanna Björk Guðjónsdóttir og Antonia Hevesi og lauk hún þaðan miðprófi vorið 2014. Síðan lá leið hennar í Söngskólann í Reykjavík þar sem kennari hennar var Ólöf Kolbrún Harðardóttir og meðleikari Hrönn Þráinsdóttir og lauk hún þaðan Burtfararprófi í söng vorið 2019.

Haustið 2023 hóf hún nám við Listaháskóla Íslands. Kennarar hennar eru Hanna Dóra Sturludóttir, Kristinn Sigmundsson, Dísella Lárusdóttir, Ryan Driscoll og meðleikari Matthildur Anna Gísladóttir.


Vorið 2019 hlaut hún 3. Sæti í söngkeppninni Vox Domini í Háskólaflokknum.
Guðný hefur brugðið sér í mörg óperuhlutverk á þessum ferli meðal annars má þar telja 1. Dreng í Töfraflautunni eftir Mozart, Adele í Leðurblökunni eftir Strauss, Nunziu í La liberazione di Ruggiero dall’isola di Alcina eftir Francescu Caccini og í vor mun hún fara með hlutverk Mömmunnar í Hans og Grétu eftir Engelbert Humperdinck.