Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Andrés Þór Þorvarðarson

Andrés Þór Þorvarðarson útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild vorið 2026

 

Óformlegt námsumhverfi hljómsveita

Hvað lærir fólk af því að vera í hljómsveitum?

 

Ritgerðin rannsakar námsumhverfi hljómsveita og hvernig verkefnin sem standa frammi fyrir hljómsveitum efla þau bæði sem tónlistarmenn en einnig tengsl þeirra við sjálft sig og samfélagið í kringum sig. Í rannsókninni var stuðst við eigindlegar rannsóknaraðferðir en tók ég viðtöl við starfandi hljómsveitir og tók hljóðupptökur af hljómsveitaræfingum.

Niðurstöður rannsóknarinnar eru síðan settar í samhengi við óformlegt nám, popp- og rokktónlist, sögu hljómsveita og kenningar Deweys um reynslunám, samfélag og lýðræði. Rannsóknin leiðir í ljós að í hljómsveitum gefst meðlimum tækifæri á að beita þekkingu sinni og nýta sér hana á skapandi hátt. Þau öðlast færni í samskiptum, skilningi til annarra og skipulagi. Að lokum eru hljómsveitir lítil samfélög byggð á lýðræði, trausti og kærleika.

Leiðbeinandi: Benedikt Hermann Hermannsson
30 ECTS Listkennslufræði MA
2026