Útskriftarathöfn Listaháskóla Íslands fór fram föstudaginn 19. júní 2026 við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Útskriftarnemendur í ár voru 191 talsins með 193 gráður en tveir nemendur luku tveimur gráðum. Þá útskrifuðust 23 úr arkitektúrdeild, 53 úr hönnunardeild, 14 úr kvikmyndalistadeild, 34 úr listkennsludeild, 5 úr sviðslistadeild og 25 frá tónlistardeild.
Þau Guðríður Jóhannsdóttir og Kister Rognaldsen Pedersen sáu um að kynna dagskrána í Silfurbergi er þau eru nemendur við Sviðslistadeild LHÍ.

Dagskráin var hátíðleg að vanda og hófst með ávarpi rektors, Kristínar Eysteinsdóttur. Það er óhætt að segja að eldræða Kristínar hafi ekki látið neinn ósnortinn en hún kvaddi útskriftarnemendur með afar dýrmætt veganesti fyrir framtíðina, áminningu um að staldra við, dvelja í augnablikinu, meta og meðtaka.
,, Við tölum oft um tímann eins og hann sé mælieining: mínútur, klukkustundir, annir, ár. Við mælum hraða, vegalengdir og afköst. En tíminn býr ekki aðeins í klukkunni. Hann býr í líkamanum. Í athyglinni. Í hjartanu. Í því hvernig við veljum að vera til staðar. Hann mótar hvernig við skynjum heiminn, berum fortíðina, mætum núinu og leyfum framtíðinni að opnast.“
Þó svo að tíminn hafi verið leiðandi stef í ávarpi rektors hvatti hún nemendur einnig til þess að halda áfram að spyrja spurninga, halda í hugrekkið og treysta innri áttavitanum. Ræðu rektors má lesa í heild sinni hér.
Að loknu ávarpi rektors var komið að nemendum en rík hefð er fyrir því að fulltrúi útskriftarnemenda úr hverri deild flytji ávarp við útskrift skólans. Í stuttum erindum nemenda var gjarnan litið yfir farinn veg, kennurum og starfsfólki færðar þakkir fyrir leiðsöng og samveru undanfarin ár og samnemendum óskað til hamingju með áfangann. Fulltrúar deildanna voru eftirfarandi:
Jireh Joan Abong Tolentino, arkitektúrdeild
Erla Lind Guðmundsdóttir, hönnunardeild
Hanna Hulda Hafþórsdóttir, kvikmyndalistadeild
Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir, listkennsludeild
Lucrezia Costa, myndlistardeild
Jón Sigurður Gunnarsson, sviðslistadeild
Tumi Torfason, tónlistardeild.
Það var ekki aðeins rektor sem gaf útskriftarnemum góð ráð fyrir framtíðina. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, flutti hátíðarræðu við athöfnina. Í ræðunni færði hún útskriftarnemum þrjú góð ráð fyrir framtíðina.
,, Í fyrsta lagi: Veljið forvitnina. Heimurinn er fullur af fólki sem telur sig vita svörin. Verið í hópi þeirra sem halda áfram að spyrja spurninga.
Í öðru lagi: Standið vörð um hugrekkið. Ekki láta óttann við að mistakast verða sterkari en löngunina til að skapa. Nánast allt sem skiptir sköpum og breytir veröldinni fæðist sem hugmynd sem einhverjum fannst algjörlega óraunhæf, jafnvel fáránleg.
Og í þriðja lagi: Minnið ykkur – og okkur öll – á mennskuna.“
Við færum Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, okkar bestu þakkir fyrir komuna, heilræðin og skilninginn á mikilvægi lista og sköpunar í íslensku samfélagi. Eins og hún orðaði svo vel í ávarpi sínu, sköpun er og verður forsenda framfara. Hátíðarræðuna má lesa í heild seinni hér.

Tvö tónlistaratriði úr söngleiknum Ormstunga voru flutt á milli ræðuhalda og brautskráningar. Hafsteinn Níelsson, annar höfundur verkins, setti fyrst upp söngleikinn í húsakynnum Listaháskólans sem þá var lokaverkefni hans á 2. ári í sviðshöfundanámi við LHÍ. Óliver Þorsteinsson, rithöfundur, skrifar einnig handritið en söngleikurinn hefur nú átt góðu gengi að fagna á sviði Þjóðleikhússins. Þau Kristinn Óli Haraldsson, Jakob Van Oosterhout og Rán Ragnarsdóttir fluttu lögin Kveðast á og Skák og mát. Þau koma öll úr sviðslistadeild LHÍ en þeir Kristinn og Jakob hafa lokið grunnnámi við sviðslitadeild skólans og Rán hefur sitt þriðja og síðasta ár við deildina í haust.



Við óskum útskriftarnemendum innilega til hamingju með áfangann, þið eruð listamenn framtíðarinnar og ykkur eru allir vegir færir. Eins færum við öllum sem komu að athöfninni okkar bestu þakkir. Hér að neðan má nálgast myndaseríu frá deginum. Ljósmyndari er Eygló Gísladóttir.