Nú er opið fyrir umsóknir í Ungir einleikarar 2027, keppni sem veitir ungum tónlistarmönnum einstakt tækifæri til að stíga á svið sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Keppnin er ætluð nemendum í hljóðfæraleik og söng, 30 ára og yngri, sem eru íslenskir ríkisborgarar eða hafa haft búsetu á Íslandi í að minnsta kosti eitt ár.
Keppnin fer fram í tveimur umferðum. Í fyrri umferð eru þátttakendur metnir út frá innsendum myndbandsupptökum. Þeir sem komast áfram taka þátt í síðari umferð sem fram fer í byrjun janúar 2027.
Sigurvegarar Ungra einleikara 2027 koma síðan fram sem einleikarar á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu, 23. apríl 2027 undir stjórn Samuel Lee.
Ungir einleikarar er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur um árabil veitt ungu tónlistarfólki verðmætt tækifæri til að öðlast reynslu af því að koma fram með atvinnuhljómsveit. Tengiliður keppninnar er verkefnastjóri Tónlistardeildar LHÍ Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir (thelma@lhi.is).
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2026.
Kynntu þér reglur keppninnar og sæktu um hér fyrir neðan!