Nokkuð löng hefð er fyrir því að ungt tónlistarfólk stigi á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og þreyti frumraun sína í hlutverki einleikara eða -söngvara með hljómsveitinni.
Á áttunda áratug síðustu aldar hófst formlegt samstarf Tónlistarskólans í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitarinnar. Það fólst m.a. í því að fyrri hluti einleikaraprófs nemenda frá skólanum var fólginn í framkomu með hljómsveitinni og hélst þessi hefð allt fram yfir síðustu aldamót. Við stofnun tónlistardeildar LHÍ árið 2001 breyttist umhverfi tónlistarmenntunar og þar með einnig hlutverk og þátttaka Sinfóníuhljómsveitar Íslands í lokaprófum tónlistarflytjenda.
Þáttaskil í sögu keppninnar
Árið 2003 urðu viss þáttaskil í þessari sögu, en þá komu fram á tónleikum síðustu einleikaraprófsnemendur Tónlistarskólans í Reykjavík ásamt fyrsta diplómaprófsnemanda tónlistardeildar, Elfu Rún Kristinsdóttur.
Árið 2004 gerðu Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listaháskólinn með sér samkomulag um framkvæmd keppninnar, en það ár og árið 2005 komu einvörðungu fram nemendur úr tónlistardeild LHÍ á tónleikum ungra einleikara. Tónleikarnir voru ekki lengur hluti af lokaprófi, heldur orðnir hápunktur á samkeppni um að koma fram með hljómsveitinni.
Dómnefnd skipuð fulltrúum frá Sinfóníuhljómsveitinni og LHÍ
Haustið 2005 var gerð breyting á forvali keppenda og keppnin opnuð öllum íslenskum tónlistarnemendum á bakkalárstigi óháð því í hvaða tónlistarskóla þeir stunduðu nám sitt. Keppendur þurfa að auki að vera íslenskir ríkisborgarar eða erlendir ríkisborgarar og hafa verið búsettir á Íslandi í að minnsta kosti eitt ár. Dómnefnd, skipuð fulltrúum frá Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listaháskólanum, getur valið allt að fjóra þátttakendur sem koma fram á tónleikunum.
Nú eru enn ein tímamótin í samkeppni ungra einleikara. Þátttökuskilyrðum verður breytt eftir ítarlega endurskoðun og þá verður keppnin einnig haldin með breyttu sniði. Keppnin hefur verið opnuð nemendum á öllum stigum háskólanáms í tónlist, þ.e. bakkalárstigi-, meistara og doktorsstigi. Aldurstakmark hefur einnig verið afnumið. Þessar breytingar eru gerðar með þróun tónlistarnáms á háskólastigi hér á landi til hliðsjónar og opnar enn frekari möguleika allra sem það stunda. Keppnin fer nú fram í tveimur umferðum. Í fyrri umferð eru umsækjendur metnir eftir innsendum myndbandsupptökum og þeir umsækjendur sem komast áfram eru boðnir í aðra umferð keppninnar. Sigurvegarara koma fram á tónleikum Ungra einleikara sem að öllu jöfnu fara fram í Eldborgarsal Hörpu.
Ný reglugerð hefur verið birt á vef LHÍ og má nálgast hér.
- Reglur keppninnarReglugerð LHÍ og SÍ
- Rafræn umsókn Rafrænt umsóknareyðublað fyrir UE 2027
- tengiliður Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar
thelma@lhi.is

2026
Halldóra Ósk Helgadóttir, söngur
Lilja Hákonardóttir, flauta
Matthildur Traustadóttir, fiðla
Mariann Rähni, píanó
2025
Bjargey Birgisdóttir, fiðla
Katrín Birna Sigurðardóttir, selló
Steinn Völundur Halldórsson, básúna
2024
Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðla
Hrafn Marinó Thorarensen, fagott
María Qing Sigríðardóttir, selló
Ólína Ákadóttir, píanó
Tómas Vigur Magnússon, fiðla
2023
Ólafur Freyr Birkisson, söngur
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir, söngur
Þórhildur Magnúsdóttir, víóla
2022
Birkir Örn Hafsteinsson, klarinett
Ingibjörg Ragnheiður Linnet, trompet
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, söngur
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, söngur
2021
Íris Björk Gunnarsdóttir, söngur
Jóhanna Brynja Ruminy, fiðla
Jón Arnar Einarsson, básúna
Marta Kristín Friðriksdóttir, söngur
2020
Kristín Ýr Jónsdóttir, þverflauta
Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, fiðla
Flemming Viðar Valmundsson, harmóníka
Gunnar Kristinn Óskarsson, trompet
2019
Guðbjartur Hákonarson, fiðla
Harpa Ósk Björnsdóttir, söngur
Hjörtur Páll Eggertsson, selló
Silja Elsabet Brynjarsdóttir, söngur
2018
Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóla
Bryndís Guðjónsdóttir, söngur
Guðmundur Andri Ólafsson, horn
Romain Þór Denuit, píanó
2017
Auður Edda Erlendsdóttir, klarínett
Herdís Mjöll Guðmundsdóttir, fiðla
Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, selló
Jóna G. Kolbrúnardóttir, söngur
2016
Heiðdís Hanna Sigurðardóttir, söngur
Ragnar Jónsson, selló
Sigríður Hjördís Indriðadóttir, flauta
Jónas Ásgeirsson, harmoníkka
2015
Baldvin Oddsson, trompet
Erna Arnardóttir, píanó
Lilja Ásmundsdóttir, píanó
Steiney Sigurðardóttir, selló
2014
Sölvi Kolbeinsson, saxófónn
Baldvin Ingvar Tryggvason, klarínetta
Björg Brjánsdóttir, flauta
Rannveig Marta Sarc, fiðla
2013
Einar Bjartur Egilsson, píanó
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, selló
Unnsteinn Árnason, söngur
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla
2012
Crissie Thelma Guðmundsdóttir, fiðla
Elín Arnardóttir, píanó
Hrafnhildur Árnadóttir, söngur
Ísak Ríkharðsson, fiðla
2011
Andri Björn Róbertsson, söngur
Birgir Þórisson, píanó
Jane Ade Sutarjo, píanó
2010
Helga Svala Sigurðardóttir, flauta
Matthías Sigurðsson, klarínetta
2009
Bjarni Frímann Bjarnason, fiðla
Hulda Jónsdóttir, fiðla
Nathalía Druzin Halldórsdóttir, söngur
2008
Theresa Bokany, fiðla
Joakim Páll Palomares, fiðla
Arngunnur Árnadóttir, klarínetta
Hákon Bjarnason, píanó
2007
Egill Árni Pálsson, söngur
Grímur Helgason, klarinett
Eygló Dóra Davíðsdóttir, fiðla
2006
Jóhann Nardeau, trompet
Júlía Mogensen, selló
Guðný Jónasdóttir, selló
Gunnhildur Daðadóttir, fiðla
2005
Hafdís Vigfúsdóttir, flauta
Sólveig Samúelsdóttir, söngur
2004
Melkorka Ólafsdóttir, flauta
Gyða Valtýsdóttir, selló
Helga Björgvinsdóttir, fiðla
Ingrid Karlsdóttir, fiðla
Spurningar um þetta efni?
Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.