Tónlistardeild Listaháskóla Íslands fékk á dögunum góða heimsókn frá Love Synthesizers, sem færði deildinni eintak af íslenska hljóðgervlinum FIRST LOVE að gjöf. Hljóðfærið mun nýtast nemendum deildarinnar í námi og sköpun
Love Synthesizers hefur átt í góðu samstarfi við LHÍ. Fyrirtækið hefur meðal annars sótt innblástur til rannsóknarverkefnisins Intelligent Instruments og Listkennsludeildar. Tengsl fyrirtækisins við LHÍ ná einnig aftur til upphafs þess en lokaverkefni eins stofnenda Love Synthesizers við Listkennsludeild rann að hluta inn í hönnun og þróun FIRST LOVE.
Fyrrverandi nemendur Listaháskólans hafa einnig komið að þróun hljóðfærisins. Ronja Jóhannsdóttir, fyrrverandi nemandi LHÍ, var hluti af forritunarteymi FIRST LOVE og einn af aðalforriturum hljóðvélarinnar og hljóðbrellna hennar.
FIRST LOVE kemur í verslanir í Evrópu og Norður-Ameríku 30. október. Af því tilefni verður útgáfupartý í Austurbæjarbíói sama kvöld kl. 22. Þar koma meðal annars fram fyrrverandi nemendur LHÍ, þar á meðal Knackered og Inspector Spacetime. Öllum nemendum er boðið og aðgangur er ókeypis.
