Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Um höfunda

  • Þræðir - Tölublað 10

Um höfunda

UM HÖFUNDA 

 

Atli Ingólfsson 

Atli Ingólfsson er prófessor í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands. Hann nam tónsmíðar í Reykjavík, Mílanó og París. Atli hefur samið fjölda tónverka af öllu tagi sem leikin hafa verið víða heima og heiman, en fjöldi verka hans hefur jafnframt komið út á hljóðriti. Hann hefur ritað nokkuð um tónlist, menningu og bragfræði og birt m.a. í Révue d’analyse musicale, Skírni, Són, Tempo, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu sem og hér í Þráðum. Hann hefur einnig gefið út bókverkið Veðurskeyti frá Ásgarði (Forlagið 2021). 

 

Einar Indra Kristbjargarson 

Einar Indra er tónskáld og hljóðlistamaður sem vinnur þvert á miðla þar sem rafhljóð, umhverfisupptökur, akústísk hljóðfæri og raddvinnsla mætast í hugleiðandi og flæðandi verkum. Hann er með M.A. í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og lítur á tónlist sem rannsókn á tíma, rými og djúphlustun. Verk hans hafa hlotið góðar viðtökur á hátíðum eins og Airwaves, Reeperbahn og Mondo, og hann hefur unnið með fjölbreyttu listafólki að myndlist, leikverkum og hljóðverkum. Þá hefur tónlist hans verið gefin út hjá Möller Records útgáfunni. 

 

Einar Torfi Einarsson 

Einar Torfi Einarsson er tónskáld og prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Hann nam tónsmíðar í Reykjavík, Amsterdam, Graz, og lauk doktorsprófi í tónsmíðum frá háskólanum í Huddersfield. 2013-2014 gegndi hann rannsóknarstöðu við Orpheus Institute í Belgíu. Tónlist hans hefur verið flutt á tónlistarhátíðum víða um heim og unnið til verðlauna í Hollandi og Austurríki. Rannsóknir hans hafa verið birtar í Perspectives of New Music og gefnar út af Leuven University Press og Routledge (CRC Press). Þá hefur tónlist hans verið gefin út hjá KAIROS og HCR útgáfunni. 

 

Hróðmar I. Sigurbjörnsson 

Hróðmar I. Sigurbjörnsson hefur kennt við tónlistardeild Listaháskólans frá 2005. Hann var fagstjóri tónsmíða og tónfræða í bakkalárnáminu frá 2014-2023 og fagstjóri meistaranámsins í tónsmíðum frá 2015-2018. Hróðmar kennir nú tónfræða- og greiningarnámskeið bakkalárnámsins. 

 

Majella Clarke 

Majella Clarke works at the intersection of art, science and technology. As a conductor, her practice focuses on both experimental conducting with technology, as well as traditional conducting of classical music and contemporary ensembles. She graduated with her MMus from Iceland University of the Arts focused on Innovative Practice in Conducting: Graphic Scores, Sonic Batons and Open Ensembles for New Performance Formats. Her recent projects include Conducting Nature Scores workshop at the Vartiosaari residency in Finland, Spherical Harmonics, which creates gesture scores and sculptures inspired by the shapes of spherical harmonics with a sonic baton. She premiered the work Loxodrome at the SIM residency, Iceland, that brought together sonic conducting baton, theremin, electric violin and synth, and drum pad synth with fellow artists for exploring new ensemble dynamics, agentalities, and aesthetics. She regularly works alongside living composers premiering and conducting new works. Her current focus is on compositional materialities for expanding the practice of conducting with the aim to discover new ensemble aesthetics. 

 

Þórhallur Magnússon 

Þórhallur Magnússon er prófessor við Sussex háskóla í Englandi og rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands. Auk þróunar hljóðfæra og tónlistarkerfa, þá skrifar hann tónlistarforrit, greinar og bækur um tónlist. Árið 2022 gaf MIT Press út bókina Live Coding: A Users Manual sem fjallar um lifandi forritun til listsköpunar en þar áður gaf Bloomsbury Academic út bókina Sonic Writing: Technologies of Material, Symbolic and Signal Inscriptions, þar sem hann skoðar rætur tölvutónlistar 21. aldar aftur í fornöld. Þórhallur stýrir verkefninu Intelligent Instruments sem styrkt var af Rannsóknarráði Evrópusambandsins og er hýst við Háskóla Íslands í samvinnu við Listaháskóla Íslands. 

 

Úr sama tölublaði