Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Útgáfuhóf í tilefni ÞRÁÐA og útgáfu 11. tölublaðsins
Á dögunum var haldið formlegt útgáfuhóf í tilefni af prentuðu útgáfu tímaritsins ÞRÆÐIR, þar sem jafnframt var fagnað útgáfu 11. tölublaðs ritsins.
Tímaritið ÞRÆÐIR var stofnað árið 2016 og markar útgáfan nú 10 ára afmæli þess. Af því tilefni hefur verið gefin út prentuð safnútgáfa þar sem fyrstu tíu tölublöð ritsins eru sameinuð í eitt heildstætt verk. Í safnútgáfunni er að finna alls 83 greinar eftir 49 höfunda.
Frá upphafi hefur markmið ritsins verið að stuðla að vandaðri íslenskri orðræðu um tónlist sem er hvorki bundin við hefðbundnar fræðigreinar né takmörkuð við eitt sjónarhorn. Efni ritsins endurspeglar þessa sýn og spannar fjölbreytt svið, þar á meðal tónfræðilegar og sögulegar rannsóknir, umfjallanir um sköpunarferli, tengsl tónlistar við önnur listform, auk greina sem fjalla um samfélagslegt samhengi tónlistar.
Við óskum ritstjórn ÞRÁÐA og öllum greinahöfundum hjartanlega til hamingju með útgáfuna.