Árleg ráðstefna Listaháskóla Íslands, Hugarflug fór fram í húsnæði skólans í Stakkahlíð 1 dagana 9. – 11. september og bar að þessu sinni yfirskriftina Að skynja heiminn // Sensing the world.

 

Hugarflug hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir skapandi og gagnrýna umræðu um rannsóknir í listum, listkennslu, arkitektúr og hönnun en ráðstefnan var haldin í fimmtánda sinn í ár.

 

Lykilfyrirlesarar að þessu sinni voru þær Mette Edvardsen, sviðslistakona, danshöfundur og doktorskandídat í listum við Listaháskólann í Osló og Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona og rithöfundur sem hefur á löngum starfsferli tekið á málefnum samtímans hverju sinni, ekki síst í umhverfis- og jafnréttismálum.

Mette fjallaði um nálgun sína við performansinn, hlutverki tungumálins og texta í verkum sínum og hversu mikilvægur hluti skynjunar og upplifana áhorfenda sé fólgin í ímyndunarafli þeirra og minningum. 

Yfirskrift ráðstefnunnar beindi sjónum sínum að heimi skynjunar, hvernig við tengjumst eigin skynjun og heiminum í kringum okkur. Metumsóknarfjöldi barst Hugarflugsnefndinni í ár en um 40 erlendir þáttakendur víðsvegar að úr heiminum héldu erindi í tengslum við þemað á ráðstefnunni. Þáttaka hefur aldrei verið jafn mikil og í ár voru um 280 gestir sem sóttu Hugarflug, fjölmennasta ráðstefnan til þessa.

 

 

„Í erindi sínu á Hugarflugi fjallaði Hildur um fjarvíddina og sögu hennar og leiddi áheyrendur listilega gegnum myndlistarsöguna“

Hugarflugsnefnd og Listaháskóli Íslands þakkar öllum þáttakendum og ráðstefnugestum kærlega fyrir frábæra þáttöku og móttökur.

Sjáumst að ári liðnu. 

 

Ljósmyndari: Eygló Gísladóttir

01 / 33