Skólasetning Listaháskóla Íslands fór fram mánudaginn 17. ágúst þar sem um 220 nýnemar voru boðin velkomin á nýnemadegi LHÍ við hátíðlega dagskrá í Stakkahlíð. Dagskráin markaði formlegt upphaf námsársins og gaf nýnemum tækifæri til að kynnast skólasamfélaginu, þjónustu þess og þeim fjölbreyttu tækifærum sem bíða þeirra á komandi misserum.

Dagurinn hófst með sameiginlegri kynningu fyrir alla nýnema þar sem Kristín Eysteinsdóttir, rektor LHÍ, bauð nemendur velkomna með innblásnu ávarpi. Að því loknu var starfsemi skólans kynnt, auk helstu stoðsviða, þjónustueininga og úrræða sem standa nemendum til boða. Einnig var farið yfir öryggisreglur skólans og samskipasáttmála sem er ætlað að stuðla að virðingu, öryggi og góðum samskiptum innan skólasamfélagsins.

Einn af hápunktum dagsins var erindi hollnemans Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur, myndlistarkonu, skálds og gjörningalistamanns, sem flutti nýnemum hvatningarorð um nám, sköpun og listastarf. Ásta Fanney er meðal þekktustu samtímalistamanna landsins og hefur á ferli sínum unnið á mörkum fjölmargra listforma, þar á meðal myndlistar, ljóðlistar, kvikmyndagerðar, tónlistar og gjörningalistar. Verk hennar hafa verið sýnd og flutt á söfnum og listahátíðum víða um heim og árið 2021 var hún tilnefnd til Bernard-Heidsieck verðlaunanna hjá Centre Pompidou í Frakklandi. Hún var jafnframt valin fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026, einum virtasta vettvangi samtímalistar á alþjóðavísu.

Í erindi sínu hvatti Ásta Fanney nýnema til að rækta forvitni sína, treysta eigin rödd og nálgast námið af opnum huga og taka eftir vísbendingum sem heimurinn sendir okkur. Reynsla hennar af fjölbreyttum og óhefðbundnum listrænum leiðum endurspeglar þau gildi sem Listaháskóli Íslands leggur áherslu á: rannsóknir, tilraunir og skapandi hugsun.

Eftir hádegi opnaði upplýsingatorg nýnema þar sem nemendur gátu kynnt sér starfsemi deilda og þjónustueininga skólans nánar. Boðið var upp á léttar veitingar og sá DJ Housekell um tónlistina og skapaði líflega stemningu meðal nýnema.

Með nýnemadeginum hófst nýtt skólaár við LHÍ formlega og voru nýnemar hvattir til að taka virkan þátt í fjölbreyttu og skapandi skólasamfélagi sem einkennir Listaháskóla Íslands. Verið hjartanlega velkomin kæru nýnemar!

Ávarp Kristínar Eysteinsdóttur, rektors má lesa í heild sinni hér

 

Nýnemadagur í Hamri 17.ágúst 2026
Myndir: Eygló Gísla
Nýnemadagur í Hamri 17.ágúst 2026
Myndir: Eygló Gísla