Listaháskóli Íslands stóð í dag miðvikudaginn 4. nóvember fyrir samráðsfundi með samstarfs- og hagaðilum skólans um framtíð Listaháskólans og þróun háskólanáms í listum. Markmið samráðsins var að hlusta eftir ólíkum sjónarmiðum, draga fram nýjar hugmyndir og skapa vettvang fyrir samtal um hvernig Listaháskóli Íslands og listnám á háskólastigi geta þróast og dafnað á komandi árum.

Samtal við samfélagið

Samráðið er hluti af áframhaldandi samtali skólans við samfélagið, fagvettvang listanna og aðra hagaðila. Í stefnu Listaháskóla Íslands 2024–2028 er meðal annars lögð áhersla á að skólinn sé hreyfiafl í síbreytilegum heimi, styrki tengsl sín við samfélag og starfsvettvang og þrói námsframboð í samtali við menningarstofnanir, fagfélög og atvinnulíf.

Samhliða fundinum kallaði Listaháskólinn eftir sjónarmiðum hagaðila í samráðskönnun og voru þær niðurstöður kynntar á fundinum.

Niðurstöður samráðsins eru mikilvægt innlegg í áframhaldandi umræðu og stefnumótun um hlutverk Listaháskólans, þróun náms og tengsl skólans við samfélagið á komandi árum.

Listaháskólinn þakkar góða mætingu og góð viðbrögð við könnuninni.