Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands þakkar innilega öllum gestum og þátttakendum fyrir komuna á Praxis sviðslistaþing laugardaginn 19. september.
Þema Praxis í ár var, Leikarinn og hlutverkið, þar sem áhersla var á ólíkar leiktúlkunaraðferðir og starf leikarans innan sviðslista.
Fagvettvangurinn og háskólasamfélagið fyllti húsið og úr varð frábær dagur fullur af innblásandi samtölum, hugmyndum og erindum.
Leikkonan og dósent við RESAD, Sol Garre, flutti erindið „What does an actor actually “know” when he acts?“.
Þar fjallaði hún um öflun listrænnar þekkingar og það hvernig þjálfun leikara mótar líkama, ímyndunarafl, skynjun og skapandi vinnubrögð flytjandans.
Einnig tók til máls Björn Thors leikari sem fjallaði um reynslu sína af vinnu við einleiki og Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og fyrrverandi prófessor við Sviðslistadeild en hún fjallaði um hvernig leikari tekst á við endurtekninguna á sviði.
Deginum lauk með málstofu um leiktúlkunaraðferðir þar sem þátttakendur fjölluðu um þær aðferðir, verkfæri, vinnu- og verkferla sem þau nota í sinni vinnu. Þá var einnig tekið fyrir hvaða faglega samtal á sér stað innan fagsamfélagsins og hvort leikarar eiga með sér sameiginlegt tungumál. Þátttakendur voru leikararnir Ilmur Kristjánsdóttir, Oddur Júlíusson, Sólveig Arnarsdóttir og Stefán Jónsson. Umræðunum stjórnaði Agnar Jón Egilsson leikari, dósent og fagstjóri leikaranáms við LHÍ.
Hlökkum strax til næsta sviðslistaþings deildarinnar!
Ljósmyndir: Eygló Gísladóttir.
















