Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Opið kall fyrir Praxis sviðslistaþing LHÍ 

  • 9.mars 2026

Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands auglýsir eftir framlögum á Praxis, sviðslistaþing LHÍ, sem haldið verður í þriðja sinn laugardaginn 19. september 2026. Þingið er vettvangur fyrir listrænar tilraunir, þekkingarsköpun og samtal milli fagvettvangsins og háskólasamfélagsins. Um leið er þingið staður fyrir sviðslistasenuna til að koma saman og deila aðferðum og rannsóknum, og hugsa saman til framtíðar.

Þema Praxis 2026 er „ Leikarinn og hlutverkið” þar sem áhersla er á ólíkar leiktúlkunaraðferðir og starf leikarans innan sviðslista. Umsóknir skulu innihalda ferilskrá og einnar blaðsíðu greinargerð um efni erindis og ástæðu umsóknar. Umsóknir eru opnar öllu sviðslistafólki en tekið skal fram í umsókn hvernig framlagið tengist viðfangsefni Praxis. Kallað er eftir framlögum frá sviðslistasamfélaginu, sem geta verið í  formi fyrirlesturs, vinnusmiðju, málstofu, o.s.frv.

Framlög skulu vera að hámarki 45 mín með umræðum. Ekki er greitt sérstaklega fyrir þátttöku í Praxis.

Opið er fyrir umsóknir frá mánudeginum 9. mars 2026 og skal þeim skilað inn í HÉR. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 20. apríl 2026. 

Nánari upplýsingar veita: Una Þorleifsdóttir, deildarforseti Sviðslistadeildar – una@lhi.is og Þorvaldur S. Helgason, akademískur verkefnastjóri – tsh@lhi.is.