Listaháskóli Íslands býður alla nýnema velkomna á nýnemadaga 17.-18. ágúst 2026. Sameiginleg dagskrá nýnema fer fram í húsnæði skólans við Stakkahlíð 1 og hefst kl. 10:30 mánudaginn 17. ágúst. Þar fá nýir nemendur ýmsa fræðslu um lífið og þjónustu skólans, kynnast samnemendum sínum og starfsfólki og fá afhent aðgangskort að byggingum.

Að loknum nýnemadögum taka deildir skólans við nemendum í áframhaldandi dagskrá út vikuna en nánari upplýsingar um deildarskipta dagskrá má finna hér.