Í ágúst 2026 kynnti Listaháskóli Íslands nýja ásýnd sem unnin var í samstarfi við Karlssonwilker og byggir á rúmlega tveggja áratuga þróun og sögu skólans.

Endurmörkunarferlið hófst haustið 2024. Markmiðið var að styrkja og skýra ímynd skólans og samræma framsetningu hans á ólíkum miðlum og um leið endurspegla fjölbreytni náms, kennslu, rannsókna og listsköpunar við skólann.

Auk Karlssonwilker komu grafíski hönnuðurinn Dagur Eggertsson og Gunnar Vilhjálmsson hjá Universal Thirst að verkefninu. Gunnar Vilhjálmsson þróaði sérstakt letur fyrir skólann sem er einn af lykilþáttum ásýndarinnar. Letrið styður við samræmda og auðþekkjanlega framsetningu LHÍ á öllum miðlum.

Karlssonwilker hönnunarstofa

Hönnunarstofan Karlssonwilker var stofnuð árið 2000 af Hjalta Karlssyni og Jan Wilker en þeir kynntust þegar þeirstörfuðu saman á hönnunarstofu Stefan Sagmeister. Stofan er með aðsetur í New York oger þekkt fyrir verkefni á sviðivörumerkjaþróunar, upplifunarhönnunar, skilta- og leiðarkerfa og stafrænnar hönnunar. Meðal viðskiptavina hennar eruListasafn Reykjavíkur, Bloomberg, Nintendo, The New York Times, Samsung og Vitra. Karlssonwilker hefur hlotiðalþjóðlega viðurkenningu fyrir hugmyndaríka og rannsóknardrifna nálgun á hönnun.

Ferningurinn í sögu skólans

Við þróun ásýndarinnar var litið til sjónrænnar sögu Listaháskóla Íslands. Fyrsta merki skólans var hannað af Guðmundi Oddi Magnússyni, fyrrverandi prófessor við skólann. Rauður, fylltur ferningur var þar í forgrunni og varð einkennandi tákn skólans.

 

Árið 2012 fékk hönnuðurinn Ármann Agnarsson það verkefni að þróa ásýndina áfram. Formi og merkingu upprunalega merkisins var haldið, en rauði ferningurinn varð að svörtum ramma með opinni miðju. Ferningurinn fékk þannig hlutverk glugga sem vísaði til nýrra möguleika, þekkingar og sjónarhorna

Sagan um merkið er órjúfanlegur hluti af sögu LHÍ. Kveikjan að merkinu er á forsíðu nótnaheftis tónskáldsins Jóns Leifs sem gefið var út í Leipzig.

Ferningurinn er forn tilvísun í upphafsreit vísar jafnframt til helstu upphafsmanna módernismans þeirra Kazimir Malevich, El Lissitzky og Josef Albers, sem oft er kenndur við Bauhaus og er einna þekktastur fyrir myndheim sinn „Homage to the square“.   

Ferningurinn fær framhaldslíf í nýju myndmerki LHÍ

Þessi þróun frá rauðum ferningi yfir í svartan glugga varð mikilvægur þáttur í ásýnd skólans á næstu árum. Nýtt útlit byggir áfram á þeirri hugsun að sjónræn framsetning skólans sé ekki aðeins auðkenni heldur einnig tákn um hlutverk hans sem vettvang fyrir listsköpun, rannsóknir, menntun og nýjar hugmyndir.

 

Svarti ferningurinn heldur sér í nýju útliti skólans en farnar eru nýjar leiðir í leik með ferninginn. Svo sem með því að láta hann ramma inn starfsemi skólans, en ljósmyndir af verkefnum nemenda og úr starfsemi skólans gegna einnig lykilhlutverki í nýrri ásýnd.

Ferningurinn fær í nýrri ásýnd einnig að snúast og kemur mikið við sögu í nýja letrinu. 

Sameiginleg umgjörð fyrir allt skólasamfélagið

Nýju ásýndina má nú sjá víða í byggingum Listaháskóla Íslands, þar sem hún rammar inn fjölbreytt starf skólans og færir ólíka hluta hans nær hver öðrum. Endurmörkunin snýst þannig ekki eingöngu um útlit heldur um að skapa skýrari sameiginlega umgjörð fyrir nemendur og starfsfólk, þvert á deildir og starfsstöðvar. Við færum Karlssonwilker okkar bestu þakkir fyrir samstarfið og hlökkum til að sjá nýja ásýndina halda áfram að lifna við í skólasamfélaginu.