Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

LHÍ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2026

  • 20.mars 2026

Á Íslensku tónlistarverðlaununum 2026, sem afhent voru í Hörpu þann 18. mars, var framlag Listaháskóla Íslands áberandi þar sem kennarar og fyrrum nemendur hlutu fjölda viðurkenninga.

Hanna Dóra Sturludóttir, fagstjóri söngleiðar Tónlistardeildar LHÍ, hlaut verðlaun fyrir söng ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar.

Hanna Dóra hefur um árabil verið ein af okkar fremstu söngkonum og átt farsælan feril í óperum og á tónleikum víða um heim. Þessa dagana syngur hún nú hlutverk Madame de Croissy í óperunni Dialogues des Carmélites eftir Francis Poulenc við Staatstheater Saarbrücken ásamt því að sinna fagstjóra og kennarastörfum við tónlistardeild LHÍ.

 

Á íslensku tónlistarverðlaununum létu hollnemar skólans einnig að sér kveða. Anna Þorvaldsdóttir hlaut verðlaun fyrir lag og tónverk ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar fyrir sellókonsertinn Before we fall, og Áslákur Ingvarsson ásamt Sólveigu Sigurðardóttir, sem hluti af sviðslistahópnum Óður, voru valin flytjandi ársins í sama flokki.

Benni Hemm Hemm hlaut tvöföld verðlaun fyrir lag ársins í flokknum popptónlist og texta ársins fyrir lagið Eitt af blómunum, samið í samstarfi við Páll Óskar. Þá hlaut Króli verðlaun fyrir lag og tónverk ársins í hipphopp-flokki fyrir 10 ÞÚSUND sem hann samdi ásamt Emmsjé Gauta.

Sævar Jóhannsson hlaut verðlaun fyrir plötu ársins í opnum flokki fyrir Quiet Presence og Úlfur Eldjárn í flokki kvikmynda- og leikhústónlistar hlaut verðlaun fyrir verkið Where is Jón?.

Árangur þessa hóps endurspeglar sterkt og fjölbreytt starf LHÍ og það skapandi umhverfi sem þar hefur mótast.

Við óskum öllum verðlaunahöfum innilegar hamingjuóskir með árangurinn og hlökkum til bjartrar framtíðar á tónlistarbrautinni.

Aðrar fréttir og greinar