Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Harmonikuhátíð LHÍ og Salarins í Kópavogi

  • 9.apríl 2026

Þann 18. apríl kl. 20 fara fram einstakir tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem fremstu harmoniku- og bandóneonleikarar heims flytja tónlist argentínska tónskáldsins Astor Piazzolla.

Í fyrsta sinn koma saman þeir Klaudiusz Baran, Raimondas Sviackevičius og Giuseppe Scigliano, ásamt íslenska harmonikuleikaranum German Khlopin, sellóleikaranum Steiney Sigurðardóttir og strengjakvartettinum Icelandic Strings.

Á efnisskránni eru þekkt verk eftir Piazzolla, þar á meðal Oblivion, Adios Nonino og Le Grand Tango. Piazzolla er þekktur fyrir að hafa skapað Tango Nuevo, stefnu sem sameinar áhrif úr djassi og klassískri tónlist við hefðbundna tangótónlist.

Kynnir kvöldsins er Paolo Picchio.

Viðburðurinn er liður í víðtæku samstarfi Listaháskóla Íslands og Salurinn Tónlistarhúss. En tónleikarnir eru hápunktur Harmonikuhátíðarinnar sem fram fer dagana 16.–18. apríl og eru allir viðburðir opnir almenningi. Þar með verður Harmonikuhátíðin kórónuð með stórtónleikum í Salnum í Kópavogi.

 

Dagskrá Harmonikuhátíðarinnar

Fimmtudaginn 16. apríl fer fram masterclass í Salnum í Kópavogi frá kl. 9:00–14:00 og síðar sama dag í Dynjandi (Tónlistardeild LHÍ) kl. 15:00–17:00. Síðar um kvöldið, kl. 19:00 verða nemendatónleikar í Dynjanda þar sem þátttakendur kynna afrakstur námskeiðsins og flytja verk eftir meðal annars Astor Piazzolla, Johann Sebastian Bach, Franz Liszt og Edvard Grieg, auk fleiri verka fyrir harmoniku.

Föstudaginn 17. apríl heldur Paolo Picchio fyrirlestur um Piazzolla í fyrirlestraröðinni Samhengi í Dynjanda. Picchio er framkvæmdastjóri Bugari Armando harmonikuverksmiðjunnar í Castelfidardo og hefur haldið fjölmarga fyrirlestra víða um heim um líf og verk Piazzolla, sögu harmonikunnar og tengsla hennar við kammertónlist. Árið 2021 gaf hann út bókina Astor Piazzolla – the father of Nuevo Tango – Chronology, works and reasoned discography, í tengslum við alþjóðlegt 100 ára afmælisverkefni tónskáldsins.

Sama dag, kl. 15:00–17:00, leiðir Picchio einnig masterclass í Dynjanda þar sem áherslan verður á útsetningar fyrir einleik og kammerhópa. Síðar um daginn mun Prof. Giovanni Barbato halda masterclass fyrir fiðlur í Skriðu, sal LHÍ í Stakkahlíð 1.

Með tónleikunum í Salnum í Kópavogi lýkur fjölbreyttri Harmonikuhátíð með glæsibrag.