Tvisvar á ári gefst akademísku starfsfólki Listaháskóla Íslands að sækja um framgang í starfi. Hæfisnefnd fer yfir umsóknirnar og fer starfsfólkið í gegnum ítarlegt faglegt mat. Fjórir akademískir starfsmenn hljóta framgang í starfi frá og með 1.ágúst 2026. Starfsfólkið kemur úr þremur deildum skólans þ.e. Arkitektúrdeild, Myndlistardeild og Tónlistardeild.
Úr Arkitektúrdeild:
- Anna Sigríður Jóhannsdóttir hlýtur framgang í stöðu prófessors
- Sahar G. Kvaran hlýtur framgang í stöðu prófessors
Úr Myndlistardeild:
- Páll Haukur Björnsson hlýtur framgang í stöðu dósents
Úr Tónlistardeild:
- Bergrún Snæbjörnsdóttir hlýtur framgang í stöðu dósents.
Við erum stolt af öllu okkar framúrskarandi starfsfólki og óskum nýjum dósentum og prófessorum Listaháskólans innilega til hamingju!