Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Fatahönnunarnemar sýndu lokaverkefni sín í troðfullum Flóa [Myndir]

  • 28.apríl 2026

Töluverð eftirvænting ríkti í Hörpu þegar tískusýning útskriftarnema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands fór fram í Flóa á föstudaginn. Áhuginn reyndist svo mikill að færri komust að en vildu, enda um einn af hápunktum útskriftarhátíðar Listaháskólans að ræða.

Á sýningunni kynntu nemendur í fatahönnun lokaverkefni sín, sem eru einstaklingsverkefni byggð á frjálsri rannsókn, hönnun og gerð heillar fatalínu undir handleiðslu leiðbeinenda. Verkefnin endurspegluðu fjölbreytta nálgun, persónulegar rannsóknir og sterka faglega sýn hvers og eins hönnuðar.

Að þessu sinni útskrifast tíu fatahönnuðir af námsbrautinni:

Bjørk Bregendahl
Fríða Björg Pétursdóttir
Hafdís Sól Jóhannsdóttir
Helgi Þorleifur Þórhallsson
Hulda Kristín Hauksdóttir
Kristrún Rut H. Antonsdóttir
Ólafía Elísabet Einarsdóttir
Rósa Marí Sigmarsdóttir
Stella Michiko Sigrún Delli Zuani
Sverrir Ingi Ingibergsson

Sýningarstjóri var Anna Clausen.

Tískusýningin er hluti af stærri dagskrá útskriftarhátíðar Listaháskóla Íslands, þar sem verk nemenda í hönnun og myndlist fá verðskuldað rými. Útskriftarverkefni BA-nema verða síðar til sýnis á viðamikilli útskriftarsýningu í Hafnarhúsi, sem opnar 9. maí.