
Frame

Form

Creative review

Communication arts

Another magazine

Opið fyrir umsóknir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í allar deildir Listaháskóla Íslands.

Óli Valur ráðin verkefnastjóri í hönnunar og arkitektúrdeild
Óli Valur Pétursson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra viðburða og kynningarmála hjá LHÍ og mun hann sinna verkefnum í hönnunar- og arkitektúrdeild í Þverholti.

Katrín María fyrsti prófessorinn í fatahönnun í sögu LHÍ
Katrín María Káradóttir hlaut á dögunum framgang í stöðu prófessors í fatahönnun og er þar með fyrsti prófessorinn í fatahönnun í sögu skólans. Hún hefur átt stóran hlut í mótun háskólanáms í fatahönnun á Íslandi en hún hefur starfað við Listaháskólann síðan 2005.

Dómnefnd í hönnunarsamkeppni um Tollhúsið hefur störf
Dómnefnd í hönnunarsamkeppni um að gera Tollhúsið að framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands kom saman í fyrsta sinn á dögunum.

Nýr lektor og fagstjóri í fatahönnun við LHÍ
Ragna Sigríður Bjarnadóttir hefur verið ráðin lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands að undangengnu ráðningarferli og mun hún sinna fagstjórn á námsleiðinni.