Óli Valur Pétursson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra viðburða og kynningarmála hjá LHÍ og mun hann sinna verkefnum í hönnunar- og arkitektúrdeild í Þverholti.

Óli Valur er með BA gráðu í fjölmiðlafræði og meistaragráðu í fjölmiðla- og boðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri, þar lagði hann sérstaka áherslu á boðskiptafræðina. Samhliða náminu tók þátt hann virkan þátt í kynningarstarfi og í skipulagningu viðburða í gegnum Stúdentafélag Háskólans á Akureyri. Í þokkabót er hann að klára viðbótadiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla íslands og stefnir á útskrift í vor.

Í síðasta starfi starfaði Óli Valur sem vefstjóri hjá RIFF – Alþjóðlegri Kvikmyndahátíð í Reykjavík þar skipulagði hann líka fyrstu UngRIFF – Barnakvikmyndahátíðina. Einnig kom hann að skipulagningu á hinum ýmsu verkefnum og viðburðum í kringum hátíðina.

Í fyrri störfum hefur Óli Valur starfað sem blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og sem verkefnafulltrúi og vefstjóri hjá BYKO.

Við bjóðum Óla Val hjartanlega velkominn til starfa.