Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Bjørk Bregendahl hlaut fyrstu Kiosk-verðlaunin

  • 20.maí 2026

Bjørk Bregendahl útskriftarnemandi í fatahönnun hlaut fyrstu Kiosk-verðlaunin fyrir útskriftarverkefnið sitt leifar /ˈleiːvar/ (e. vestige /ˈvɛstɪdʒ/). Verðlaunin voru afhent á opnun Útskriftarsýningar í Arkitektúr, Hönnunar og Myndlistar í Listasafni Reykjavíkur. Verðlaunin eru ný hvatningarverðlaun sem ætlað er að styðja nýútskrifaða hönnuði við að stíga sín fyrstu skref inn á íslenskan hönnunarmarkað.

Vinningshafinn fær ráðgjöf við framleiðslu og útfærslu á vörulínu ásamt því að fá að selja vörur sínar í sex vikur í verslun Kiosk án endurgjalds eða þóknunar. Ef vel gengur er möguleiki á áframhaldandi samstarfi.

Það voru fatahönnuðirnir Helga Lilja Magnúsdóttir og Eygló Margrét Lárusdóttir sem veittu verðlaunin. Helga Lilja starfar undir merkjunum Helicopter og BAHNS og Eygló undir merkinu EYGLO.

Kiosk hefur starfað frá árinu 2010 og er í dag heimili 14 íslenskra hönnuða, þar sem jaðarhönnun og nýsköpun hafa fengið að blómstra.

Hægt er að skoða útskriftarverkefni hennar með því að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Myndir: Eygló Gísladóttir