Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Berglind María Tómasdóttir hefur verið ráðin deildarforseti í tónlist. Hún hefur störf 1. ágúst.
Berglind María er með doktorspróf í flutningi samtímatónlistar frá University of California, San Diego, diplomeksamen í flautuleik frá Det Kongelige Danske Musikkonservatorium, Kaupmannahöfn, auk burtfararprófs og blásarakennaraprófs frá Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Berglind er leiðandi listamaður í fremstu röð á vettvangi innanlands og virk á alþjóðavettvangi. Hún hefur trausta þekkingu á sínu sérsviði, sem er flutningur, sköpun og miðlun samtímatónlistar og umfangsmikla reynslu af akademískum störfum. Hún lauk doktorsprófinu árið 2013 og hefur frá þeim tíma kennt við tónlistardeild Listaháskólans. Hún hefur gegnt stöðu prófessors við tónlistardeild frá árinu 2020 en var þar áður dósent í flutningi og miðlun samtímatónlistar frá 2016. Þá var hún, frá árinu 2014, aðjúnkt og fagstjóri og starfaði í námi sínu sem aðstoðarkennari við Kaliforníuháskóla í San Diego frá 2010 til 2013.
Við óskum Berglindi Maríu Tómasdóttur til hamingju með stöðuna og horfum björtum augum á framtíð tónlistardeildar LHÍ.