Laugardaginn 26. september kl. 15:00 opnar sýningin Berlindar Jónu Hlynsdóttur 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar í Listasafninu á Akureyri.

Berglind Jóna Hlynsdóttir (f. 1979) lauk BA-námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2006 og MA frá Valand-listaháskólanum í Svíþjóð 2010. Hún stundar nú doktorsnám í listrannsóknum innan samstarfsverkefnis Listaháskóla Íslands, Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og Listasafns Íslands. Sýning hennar í Listasafninu á Akureyri er haldin í tengslum við áfangaskil í rannsóknarverkefninu.

Berglind hefur tekið þátt í samsýningum og samstarfsverkefnum víða um heim og einnig haldið allmargar einkasýningar. Hún hefur þróað aðferð við listsköpun sem felur í sér að draga fram tiltekna, falda þætti fyrirbæra, eins og staða, bygginga og hluta. Það felur í sér að hugsa um listaverk og rannsóknir sem ryksugur sem sjúga upp og móta það sem hún kallar skuggaefni. Í þessu verki býr hún til skuggaefnisryksugu með því að nota listaverkið Söngskemmtun eftir Þorvald Þorsteinsson (1998); safnar brotum, söguþráðum og örsögum frá framleiðslu þess, sem og leifum og ummerkjum sem safnast hafa upp frá ferðalögum þess og geymslu. Það er í broti augnabliks utan atburðar sem hún upplifði ekki sem Berglind byrjar að safna efninu sem dvelur í skugga þessa listaverks.